Archive | June, 2010

rni

Forholdsmessighetsprinsippet og langur skítur

Jæja, þá veit maður hvað meðalhófsregla stjórnsýsluréttarins heitir á norsku. Þjált og skorinort hugtak eins og þeirra frænda okkar er von og vísa. Ég skemmti mér þessa dagana við að læra norska lögfræði og annan þjóðlegan fróðleik á kvöldnámskeiði öryggisgæslunnar PSS sem svo heitir og annast dyravörslu, gæslu á íþróttakappleikjum og tónleikum og fleira nytsamlegt […]

Continue Reading
agnes

Tvíburi Agnesar Braga og lifrarpylsumálið

Norðmenn hafa heldur betur stimplað sig rækilega inn í Agnesar Braga-lookalike-keppninni sem nú fer um heimsbyggðina eins og eldur í sinu og hefur jafnvel skotið Wipeout ref fyrir rass í áhorfi. Það er fyrirtækið EiendomsMegler 1 sem þykir sérstaklega sigurstranglegt eins og sést á meðfylgjandi veggspjaldi þess sem prýðir byggingar hér í Forus. Ef þeir […]

Continue Reading
audkenni

Erfðabreyttir auðkennislyklar

Það er klárt mál að auðkennislykill norskra banka er ekki hlutur sem maður röltir um með í vasanum í daglegu amstri. Við fengum þessa hlunka með póstinum í dag og héldum að verið væri að senda okkur vasareikna að gjöf þar til fylgibréfið hafði verið gaumgæft. Áður hafði borist bréf með alls kyns leynilegum talnaröðum […]

Continue Reading
hvitt

Spítalalíf (M*A*S*H)

Frá og með gærdeginum tilheyrum við starfsfólki norska heilbrigðisgeirans, hvern hefði grunað það árið 2007!?! Það er alveg rafmagnað að vera farinn að gera eitthvað aftur og við getum alveg lifað með því að fá ekki sumarfrí í ár…vorum enda að koma úr hressilegu fríi. Við mættum hálftíma of snemma í gærmorgun, klukkan hálfsjö, þar […]

Continue Reading