laddi

Það er ekki oft…

…sem íslenskar kvikmyndir skilja eitthvað eftir hjá mér en með sanni má segja að Jóhannes, sem skartar Ladda og fleira góðu fólki, hafi gert það með stæl í kvöld. Ég vissi svo sem ekki við hverju ég átti að búast, hafði lesið bók Helga Ingólfssonar, Andsælis á auðnuhjólinu, sem myndin er byggð á og tekið […]

Continue Reading

Wipeout – öruggur dauði eða skjótfenginn gróði?

Það var fróðlegt að fylgjast með Sindra og félögum í Íslandi í dag kvöldsins. Þar var púlsinn tekinn á þrautabrautaþættinum Wipeout sem tekinn er upp í Buenos Aires í Argentínu og virðist – svona í fyrstu – hálfgerð Krýsuvíkurleið (eða Krísuvíkurleið ef menn kjósa þann rithátt en uppruni örnefnisins er óljós). Það er þó töluverður […]

Continue Reading
hamarinn

Enginn hamar er án klaufa

Eftir að hafa horft á hina hroðalegu spennumynd Ríkisútvarpsins, Hamarinn, tvo sunnudaga í röð veit ég ekki úr hverju ég ætti frekar að deyja; leiðindum eða hugmyndaþurrð. Í fyrsta lagi eru öll samtöl í þáttunum svo illa skrifuð að hvaða ófermt barn sem er skynjar að hvorki samstarfsfólk í löggæslu né nokkurri annarri starfsgrein myndi […]

Continue Reading

Athugasemdakerfi komið í gagnið

Vegna fjölda áskorana hefur sérlegur tölvuráðunautur minn og almennur snillingur í tæknimálum, Ríkharður Brynjólfsson, látið verða af því að koma upp athugasemdakerfi hér á síðunni. Lesendum er sem sagt gert kleift síðan núna einhvern tímann í vikunni að rita athugasemdir við einstakar greinar og pistla. Margir höfðu sent mér póst og kvartað sáran yfir vöntun […]

Continue Reading

Veiðitímabilið hafið

Jæja, þá er nauðungarsölufresturinn liðinn, 1. október er kominn og farinn, tímamarkið sem handónýt ríkisstjórn okkar Íslendinga  setti í vor þegar hún hélt að hún gæti bjargað öllu með því að fresta nauðungarsölum fram í október. Glögg birtingarmynd þessa var þegar spikfeit ljóshærð kona frá sýslumanninum í Reykjavík bankaði hér upp á í miðjum kvöldverði […]

Continue Reading
pa030141

Endurfundir aldarinnar

Jæja, það er óhætt að segja að laugardagskvöldið hafi verið gjörsamlega ógleymanlegt (þrátt fyrir að ég muni nú kannski ekki allt sem gerðist). Tuttugu ára afmælið okkar garðskælinga tókst algjörlega óaðfinnanlega og það var algjörlega ljóst að andinn í mannskapnum var til staðar sem aldrei fyrr. Endurfundanefnd tæklaði verkefni sitt nokkuð vel enda hafði hún […]

Continue Reading
gg

Tuttugu ár þotin hjá – hugvekja

Dagurinn í dag, laugardagur 3. október, er stórmerkilegur. Í kvöld hittist útskriftarárgangur 1989 úr Garðaskóla í Garðabæ og fagnar 20 ára útskriftarafmælinu. Þetta er myndarlegur árgangur, um 150 manns, og hefur hist á fimm ára fresti allar götur síðan 1994 þegar við héldum upp á fimm árin. (MYND: Musteri æsku okkar.) Samheldni og þétt vináttubönd […]

Continue Reading
eg

Ambögur hjá Egó

Útvarpshlustendur hafa vart farið varhluta af laginu Engill ræður för sem Bubbi og félagar í Egó sendu frá sér nýverið og rauk þegar í 5. sæti vinsældarlista Bylgjunnar. Bara í dag held ég að ég sé búinn að hlýða á þetta verk þrisvar sinnum í bílútvarpinu hjá mér. Það er ekkert að laginu, svo sem […]

Continue Reading