{module Ajax Contact}
CV-er Atli & Rósa
CV-Atli CV-Rosa
Ég reyndi að hafa áhrif á verðmæti skuldabréfa!!!
Þessi fyrirsögn er lygi út í gegn (nema það teljist að hafa áhrif á verðmæti skuldabréfa að borga af þeim). Henni var algjörlega beitt til að lokka lesendur að pistlinum sem sennilega er líka tómur hégómi þar sem nánast eingöngu fastir lesendur mínir, og fólk sem rambar á mig gegnum aðrar síður og leitarvélar, les […]
Skattar og dauði
Þetta tvennt telja helstu fræðimenn það eina sem öruggt er í þessu lífi og virðist sú kenning ganga alveg sérstaklega vel upp á Íslandi. Fregnir af væntanlegri hækkun tekjuskatts koma ekki á óvart, vert er þó að benda á að skattur á 250.000 krónur og lægri mánaðarlaun kemur til með að lækka í 36,1 prósent […]
Á tali…
Hermann Gunnarsson, einnig þekktur sem Hemmi Gunn, var svo almennilegur að bjóða mér í þáttinn sinn á Bylgjunni sunnudaginn 8. nóvember. Til að gera langa sögu stutta þekktist ég boðið strax og leið hreinlega eins og sjálfur Jay Leno hefði slegið á þráðinn og boðið mér vestur um haf. (MYND: Kallinn með gamla hverfið mitt […]
Blöndæla
Hæstvirtur sjöundi þingmaður Reykjavíkur norður, Pétur H. Blöndal, skefur ekki af skoðunum sínum í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins 7. nóvember. Orðrétt lét Pétur þessi ummæli falla: „…og það er meiningin að halda áfram að borga út séreignasparnað. Mér finnst hvort tveggja vera slæmt. Mér finnst ekki gott að hvetja fólk til að hætta að spara og… “ […]
Kóngur vill sigla en BYR hlýtur að ráða
Það væri synd að segja að Glitnir heitinn ætti barnaláni að fagna þessa dagana. Fregnir af þessari nýjustu beinagrind í peningaskápnum koma þó í raun ekki á óvart en það er nú aðallega vegna þess að nánast ekkert gerir það lengur í íslensku fjármálaumhverfi eftirhrunsáranna. Annars er varla hægt annað en að taka ofan fyrir […]
Spikfeitur með appelsínuhúð í ræktinni – myndir
Kæmist ágætur samblöðungur minn á Vísi yfir myndir af mér úr World Class í Spönginni síðan í dag og í gær kæmi þessi fyrirsögn að öllum líkindum sterklega til greina. Eftir leti sem á sér ekki hliðstæðu í hinum vestræna heimi dróst ég með harmkvælum í salinn í gær og tók á því…ef hægt er […]
Jungle Drum rokkar feitt
Hinir og þessir listamenn skemmta sér augljóslega vel yfir jólasmelli Emilíönu Torrini frá því í fyrra, Jungle Drum. Þýsk dauðarokksveit sem ég hafði ekki heyrt um áður, Nero’s Revenge, gerir laginu svakaleg skil sem njóta má hér. Þetta eru dúndurþéttir náungar sem minna mig helst á John Tardy og félaga í gömlu góðu Obituary. Hérna […]
McD’s In Memoriam
Sjaldan er ein báran stök. Hin íslensku útibú stærsta skyndibitaævintýris heimsins, sem þeir bræður Dick og Mac McDonald hófu í San Bernardino í Kaliforníu árið 1940, líða undir lok með þeirri viku sem nú er hafin. Í San Bernardino leit einnig einn af fyrstu Hells Angels-klúbbum heimsins dagsins ljós árið 1953 svo þetta er merkisstaður. […]







Follow