Meistarapróf í mannfræði, málvísindum og hagfræði er meðal þess sem útskrifast má með frá Hope-háskólanum í Liverpool. Hagnýtt, sígilt og staðgott nám allt saman. En nýjasta MA-gráða skólans er próf í sjálfum Bítlunum, rokksveitinni góðkunnu sem uppfóstraðist einmitt þar í borginni og sleit þar bæði barnsskónum og bítlaskónum.
Archive | Pistlar
Tengsl svefnleysis og vænisýki
Svefnleysi getur leitt til vænisýki segja breskir vísindamenn eftir ítarlega rannsóknarvinnu og benda um leið á að ein af þekktustu sögupersónum Shakespeares hafi nánast sturlast af svefnleysi.
Jarðfræðingur finnur bin Laden
Málið er leyst, Osama bin Laden er í felum í litlu þorpi í Norðvestur-Pakistan. Það er þó hvorki CIA, FBI né bandaríska þjóðaröryggisstofnunin sem slær þessu fram.
Ber er hver að baki – brjósklos á Íslandi
Þessi grein birtist upphaflega í mjög styttri útgáfu í Fréttablaðinu 13. desember 2008 en kemur hér fyrir sjónir almennings algjörlega óklippt og -skorin. Auk eigin reynslu höfundarins byggist hún á viðtölum við fagfólk á sviði taugaskurðlækninga, sjúkraþjálfunar og hnykklækninga. Hérna má svo finna ítarlega frásögn af aðgerðardegi frá sjónarhóli sjúklings.
Kurteisi á brennivínsumbúðum
Breska heilbrigðisráðuneytið telur að varnaðarorð á áfengisumbúðum mættu vera kurteislegri og hyggst gera bragarbót þar á.
Úr að ofan?
Svissneski armbandsúraframleiðandinn Parmigiani kvíðir því ekki að hinir efnameiri hætti að kaupa sér úr þótt aðrir framleiðendur í sama bransa finni fyrir samdrætti.
Obama með nýja kynslóð Blackberry
Af öryggisástæðum er alls óvíst að Barack Obama fái að halda sínum ástkæra Blackberry-síma. Obama er Blackberry-sjúklingur, það hefur hann sjálfur viðurkennt fúslega. Fyrir þá sem eru ekki á kafi í nýjustu undrum farsímatækninnar er Blackberry samheiti yfir ákveðið snið síma sem um leið eru vefvafrar, faxtæki, tölvupóstmóttakari og fleira. Þá búa þeir yfir lyklaborði með sömu uppröðun og hefðbundið tölvulyklaborð.
Svona upplifði ég brjósklosuppskurð
Það er sólríkur miðvikudagsmorgunn 30. júlí þegar ég mæti á deild B6 í Fossvoginum stundvíslega klukkan 07:30. Brynja hjúkrunarfræðingur tekur hlýlega á móti mér og sendir mig í sturtu eftir að hafa afhent mér nærbuxur, sokka og skyrtu, kirfilega merkt Þvottahúsi ríkisspítalanna.
Breska vísindamenn bráðvantar heila
Breskir vísindamenn eru í öngum sínum vegna skorts á heilum sem þeir þarfnast vegna ýmissa rannsókna. Ætlirðu þér ekki að nota heilann mikið eftir dauðann yrðu vísindamenn við King´s College í London ákaflega þakklátir fyrir að fá að nota hann.
Sprakk í tætlur í líkbrennsluofni
Kínverji, sem talið var að látist hefði af völdum eldingar, lést í raun þegar hann varð fyrir eldflaug sem ætlað var að framkalla rigningu. Nágrannar Wang Diange í Mongólíu í Kína þóttust fullvissir um að hann hefði orðið fyrir eldingu þegar þeir komu að húsi hans í rúst í hellirigningu og þrumuveðri.

Follow