“Ertu þá ei annað en knífur hugans, helber sjónhverfing, sem slæðist fram úr hitaþrungnum heila?” spurði Macbeth hershöfðingi eftir að hafa myrt Duncan Skotlandskonung í svefni.
Samkvæmt dr. Daniel Freeman og samstarfsfólki hans við Sálfræðistofnun King´s College í London getur svefn einmitt leikið stórt hlutverk í geðslagi fólks, einkum svefnleysi en það er einmitt kvilli sem Macbeth þjáðist af samkvæmt leikriti Shakespeares. Rannsókn Freemans og félaga leiddi í ljós að 70 prósent fólks í hópi sem tekinn var til rannsóknar þjáðist af svefnleysi og sýndi um leið sterk einkenni vænisýki sem margir þekkja betur sem paranoju.
Freeman bendir á að fátt komi í veg fyrir góðan nætursvefn og svefninn hafi betri áhrif á andlega heilsu fólks en margan gruni. Ekki er nóg með þetta heldur er góður svefn einnig forvörn gegn hjartasjúkdómum og skapar hreinlega bara betri almenna líðan, segir Freeman. Um leið og hlustendur eru beðnir að sofa vel um áramótin lokar pistlahöfundur þessum síðasta pistli ársins 2008 með kærum áramótakveðjum og þökk fyrir fjölda jákvæðra athugasemda í tölvupósti, með von um áframhaldandi skemmtun og góðan svefn á árinu 2009.