Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

harold camping

Ég gæti átt einn vinnudag eftir um ævina

Þessi pistill gæti orðið sá síðasti á atlisteinn.is. Svo verður alla vega klárlega ef eitthvað er að marka hárnákvæma spá Harold Camping um að heimsendir verði núna um helgina, nánar tiltekið klukkan sex á laugardagskvöld…sennilega að vesturstrandartíma Bandaríkjanna svo reikni nú hver sem er. Hálfömurlegur tími, mánudagsmorgunn er eini vitræni tíminn fyrir endalokin, helst rétt […]

Continue Reading
seytjandi mai

Þetta er ekki auglýsing frá norska nýnasistaflokknum…

…þetta er ég heima í garði á þjóðhátíðardegi Norðmanna. Veðrið leikur við okkur hér á suðvesturströndinni á þjóðhátíðinni, veit ekki hvernig ástandið er í Ósló eða fyrir norðan. Við erum eina fólkið í lengjunni sem erum ekki að flagga og mér finnst það ómögulegt. En við eigum engan norskan fána og felum okkur bara á […]

Continue Reading
thjodhatidii

Hæ hó jibbí jei, 17. maí

Jæja, þá er komið að þjóðhátíðardeginum hérna í Noregi. Kærkomið frí eins og öll frí. Ég skrifaði um þennan merkisdag í þessum pistli hérna í fyrra og er svo sem óþarft að endurtaka þann fróðleik en Norðmenn leggja gríðarlega mikið í þennan dag og halda hann mjög helgan. Frúin verður að vinna svo ég sé […]

Continue Reading
nytimes

Forvitnileg Íslandsheimsókn New York Times

Full ástæða er til að vekja athygli á stórkostlegri Íslandsrýni Jake Halpern hjá New York Times sem lesa má hér. Mbl.is fjallaði um skrif hans núna á föstudaginn og ég sat alveg dolfallinn yfir þessari grein frá a til ö. Lýsingin á Guðfinni Halldórssyni bílasala er sennilega ein hrikalegasta mannlýsing síðan Gunnari á Hlíðarenda var […]

Continue Reading
borpallur

Bilaðar olíutölur

Ola Borten Moe, nýbakaður olíu- og orkumálaráðherra Noregs, fer mikinn í viðtali við Stavanger Aftenblad í gær og segir það enga spurningu að vinna þurfi mun meira magn af olíu og gasi úr brunnum Norðursjávarins. Hann segist treysta á hugvit hæfra manna til að ná háleitum markmiðum í olíuvinnslu. Þetta myndi auðvitað hvaða olíuráðherra sem […]

Continue Reading
tiu ar

Nú árið er liðið…

Í dag er eitt ár síðan við fluttum til Noregs þriðjudaginn 11. maí 2010. Margt vatn hefur runnið til sjávar þetta ár þótt ótrúlega stutt virðist síðan við vorum að bera búslóðina út í gám í Mosfellsbænum, keyra í tímaþröng milli stofnana í Reykjavík að ganga frá pappírum, kveðja vini og ættingja og síðast en […]

Continue Reading
gledibankinn

Eurovision

Ég var að sjá á vefmiðlum að framlag Íslendinga í Eurovision marði það í úrslit, rétt einu sinni síðasta lagið inn. Þetta er náttúrulega gaman. Þótt tónlistarstefnan í Eurovision höfði ekki beinlínis til mín (fyrir utan glæsilegt sigurlag Finna árið 2006!) hef ég nú fylgst með keppninni, svona með öðru auga, síðan þátttaka Íslendinga hófst […]

Continue Reading
jeremy

Kynni mín af the hedgehog

Sennilega er fátt ómetanlegra en gamlar myndir. Það sannaðist enn einu sinni þegar ég dró þetta ómetanlega listaverk upp úr kassa og skellti því beint í inntakstækið (skannan ef einhver kannast betur við það). Það er enginn annar en stórleikarinn og lífskúnstnerinn Ron Jeremy Hyatt, einnig þekktur sem broddgölturinn eða the hedgehog, sem fékk að […]

Continue Reading
winkel-afmaeli

Páll bannar lóð

Ekki er mínum gamla æskuvini úr Garðabænum, Páli fangelsismálastjóra Winkel, fisjað saman. Nú er hann samkvæmt fréttum RÚV búinn að hirða lóðin af föngum landsins og vill að þeir fari bara að synda, skokka og hjóla. Páll segist ekki telja það eðlilegt að menn eigi 300 kíló í hnébeygju og 200 í bekk. Hann á […]

Continue Reading