defence

Þjóðaratkvæði um Icesave

atlisteinn.is skorar á alla lesendur síðunnar, og reyndar landsmenn til sjávar og sveita yfirleitt, að láta undirskrift sína í té á heimasíðu In Defence-hópsins (smella hér) og skora þar með á forseta lýðveldisins að synja Icesave-lögunum staðfestingar og leggja ákvörðunina um brautargengi laganna í hendur þjóðar sem aldrei fær að hafa neitt að segja um […]

Continue Reading
kronan

Finnur þú Krónuna?

Fréttir kvöldsins voru hressandi og upplýsandi. Stöð 2 greindi frá því að Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Kaupþings, KB, Nýja Kaupþings, Arion og allra þessara banka, hefði gengið út úr Icebank með hressandi starfslokasamning sem fólst í uppgufun 850 milljóna kúluláns hans. Á sama tíma berast fréttir af því að þeir starfsmanna hans sem dirfist að sækja […]

Continue Reading
arion

Banki eða þvottaefni?

Arion Ultra Plus, þessi ágæta nafngift margnefndasta banka Íslandssögunnar heggur ansi nærri hinu góðkunna Ariel-þvottadufti. Vonandi tengist það þó ekki þvotti peninga heldur fremur nafni þeirrar grísku goðsagnapersónu sem því er ætlað að endurspegla en sá var víst tákn sameiningar og endurreisnar auk þess að hafa verið fyrsti verðbréfamiðlarinn. (MYND: Gríski töffarinn Arion lét sér […]

Continue Reading
illugi

Jæja, málið er leyst

Ekki getur maður annað an varpað öndinni léttar eftir hughreystandi ummæli Illuga Gunnarssonar, þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem hann fullyrðir að Íslendingar eigi svo mikil auðæfi í lífeyrissjóðunum að þeir standi betur en nær allar aðrar þjóðir. Þetta eru gleðitíðindi, Illugi, við erum þá ekkert að stressa okkur frekar á […]

Continue Reading
lady

Sjúkir dýraníðingar

Dýravinir landsins (og án efa fleiri) standa höggdofa gagnvart fréttum af aldurhniginni schäfer-tík, Lady, sem var urðuð lifandi við smábátahöfnina í Kópavogi rétt fyrir helgi. Engin takmörk virðast vera fyrir því hvað veitir geðtrufluðum einstaklingum ánægju, þess sáust fjölmörg dæmi víða og oft. Þyngd þeirra steina sem notaðir voru við ódæðið þykir bera þess vitni […]

Continue Reading
kiss

Passíusálmur númer 666

Ég var lítið barn og ég lék mér við ströndina…maður sem þjóðin hrakti síðar úr embætti kom til mín og sagði  „Við skulum ekki persónugera vandann, litla barn. Helgi Seljan er fífl og dóni.  “ Ég var lítið barn og ég lék mér við ströndina…dýralæknir kom til mín og sagði „Herra Darling og ungi maður, […]

Continue Reading
p8180256

Við vorum einu sinni á kennderíi fyrir 45 árum…

Svona hljómaði ein af ótal drykkjusögum Braga snillings Kristjónssonar sem rekur musterið Bókavörðuna en Bragi var með fastan pistil sinn í Kilju Egils Helgasonar í kvöld. Önnur saga hans hófst á orðunum  „Einu sinni vantaði okkur brennivín og hvað heldurðu maður…  “. Bragi er algjör þjóðargersemi og ætti að vera búinn að fá margar fálkaorður. […]

Continue Reading
esb

ESB, barnamarkaðssetning og dauðinn

Fátt er eins hjálparvana og maður sem er að reyna að hefja próflestur en menntagyðjan mætir seint og illa. Svo er mér farið í dag. Þriðjudaginn 15. desember þreyti ég próf Baldurs Þórhallssonar í hinu ágæta námskeiði Alþjóðasamvinna og staða Íslands í alþjóðakerfinu. Ég hef aldrei verið neinn sérstakur áhugamaður um Evrópusambandið, hnattvæðingu og Schengen-samstarfið. […]

Continue Reading
almanak

Nýjung í þágu neytenda

Vegna fjölda áskorana hefur ritstjórn atlisteinn.is ákveðið að pistlar vefsetursins verði eftirleiðis dagsettir. Óþekktur kvenkyns lesandi sendi eftirfarandi línur frá erlendu ríki og ritstjórnin getur ekki fundið það í hjarta sínu að daufheyrast við svo göfuglegri bón: Endilega haltu áfram að skrifa, það er ástæða fyrir fjölda heimsókna á síðuna þína … Bara eitt; geturðu […]

Continue Reading