Shigeo Tokuda er 75 ára gamall. Hann kallar þó ekki allt ömmu sína og lét þennan virðulega aldur og nokkur grá hár ekki aftra sér frá því að hefja tökur á nýrri klámmynd um páskana. (Hann heldur sér vel kallinn eins og myndin ber með sér./Reuters)
Tokuda byrjaði reyndar í seinni kantinum, hann hafði unnið á ferðaskrifstofu mestalla starfsævina og var 59 ára gamall þegar hann lék í sinni fyrstu klámmynd. Það virðist þó hafa gengið ágætlega því síðan eru verk hans orðin rúmlega 200. Leikstjóri nýju myndarinnar segir þetta vera japönskum eldri borgurum þarfa áminningu um að aldur sé ekki eitthvað sem þurfi að aftra fólki frá því að stunda kynlíf.


Follow
Nýstárlegum heitum yfir gamalgróin störf er ætlað að laða fólk í atvinnuleit að þeim, eftir því sem markaðsrannsóknarfyrirtækið OnePoll hefur fundið út.
verið er að prófa á flugvöllum í Manchester og víðar, er ætlað að bera kennsl á farþega sem fara um flugvellina og auðvelda öryggisvörðum og tollgæslu að bera kennsl á hryðjuverkamenn og aðra sem hugsanlega ferðast undir fölsku flaggi og nota fölsuð vegabréf.
Lögregla í Suður-Karólínu rannsakar nú hvort útfararþjónusta hafi fjarlægt fótleggina af líki hávaxins manns til að koma því fyrir í kistunni. Rannsóknin á þessum óhugnanlega niðurskurði er byggð á framburði fyrrverandi starfsmanns útfararþjónustunnar en hinn látni var tæpir tveir metrar á hæð og lést úr krabbameini árið 2004.
Milljónir breskra fjölskyldna hinnar svokölluðu samlokukynslóðar eru að kikna undan álaginu af að þurfa bæði að sinna foreldrum sínum og afkvæmum.
