Þetta myndband sýnir fallega stund. Þarna tek ég fyrsta sopann af áfengum miði eftir að hafa migið ryki í tvo mánuði, 1. janúar til 1. mars 2009. Upptakan er frá því klukkan 00:01 1. mars. Ég stunda það að gerast frábitinn nautn áfengra drykkja frá því að ég legg frá mér tómt glas að morgni […]
Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson
Slapp fyrir horn
Smástirni, sem er um 40 metrar að þvermáli, þaut hjá jörðinni rétt ofan við flughæð gervihnatta á mánudaginn.
Klósett ársins 2008
Er hvorki meira né minna en skóli Ísaks Jónssonar. Sjá grein undir liðnum Tuð.
MA í Bítlunum – gerðu betur
Meistarapróf í mannfræði, málvísindum og hagfræði er meðal þess sem útskrifast má með frá Hope-háskólanum í Liverpool. Hagnýtt, sígilt og staðgott nám allt saman. En nýjasta MA-gráða skólans er próf í sjálfum Bítlunum, rokksveitinni góðkunnu sem uppfóstraðist einmitt þar í borginni og sleit þar bæði barnsskónum og bítlaskónum.
Leiðinleg saga af Ísaksskóla
Ég gekk í skóla Ísaks Jónssonar árin 1978 – 1980 og hafði af því gagn og allnokkurt gaman. Sú minning hefur nú verið svert af stjórnendum skólans sem brugðust algjörlega í málinu sem hér segir af, þrátt fyrir að ég hafi í upphafi verið fullvissaður um að málið fengi farsælan endi og væri í góðum […]
Tengsl svefnleysis og vænisýki
Svefnleysi getur leitt til vænisýki segja breskir vísindamenn eftir ítarlega rannsóknarvinnu og benda um leið á að ein af þekktustu sögupersónum Shakespeares hafi nánast sturlast af svefnleysi.
Jarðfræðingur finnur bin Laden
Málið er leyst, Osama bin Laden er í felum í litlu þorpi í Norðvestur-Pakistan. Það er þó hvorki CIA, FBI né bandaríska þjóðaröryggisstofnunin sem slær þessu fram.
Ber er hver að baki – brjósklos á Íslandi
Þessi grein birtist upphaflega í mjög styttri útgáfu í Fréttablaðinu 13. desember 2008 en kemur hér fyrir sjónir almennings algjörlega óklippt og -skorin. Auk eigin reynslu höfundarins byggist hún á viðtölum við fagfólk á sviði taugaskurðlækninga, sjúkraþjálfunar og hnykklækninga. Hérna má svo finna ítarlega frásögn af aðgerðardegi frá sjónarhóli sjúklings.
Lifur óskast
Óska eftir lítið notaðri lifur fyrir sumarið. Má þarfnast aðhlynningar en helst ekki vera sem sæbarið blágrýti. Ég á eina svoleiðis fyrir.
Geysir – bistro og bar
‘Bjóddu ástinni á Geysir á Valentínusardaginn…’ segir í auglýsingu frá téðum veitingastað sem birtist í Fréttablaðinu á laugardaginn, sem einmitt var Valentínusardagur. Fyrir nú utan það að innflutningur þessarar amerísku peningaplokkshátíðar er ekki eitthvað sem hérlend öldurhús ættu að stæra sig af er botninum náð, og verðskuldar sæti í klósetti vikunnar með æðsta láði, þegar […]

Follow