Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

esb

Aftur til lífsins

Jæja, þá er þetta blessaða próf í alþjóðastjórnmálum yfirstaðið og lífið hægt og rólega að detta í skorður aftur. Djöfullegri próflestur hef ég ekki gengið í gegnum ansi lengi, eiginlega bara mjög lengi. Fyrir vikið veit ég núna töluvert um Evrópusambandið, stjórn þess, sögu og virkni sem ég hafði ekki hugmynd um áður enda aldrei […]

Continue Reading
prf

HVE FUCKED UP ER ÞAÐ…

…þegar maður er kominn á fætur FYRIR 9 á sunnudagsmorgni til að lesa um eitthvert Evrópusamrunaalþjóðavæðingarschengenþróunaraðstoðarvarnarmálakaldastríðskjaftæði eftir menn sem heita Scholte, Giddens, Katzenstein og Baldur Þórhallsson!?!?!?!? (MYND: Próflestrarsloppurinn, kaffið og fyrri bók Auðuns Arnórssonar um ESB. Fullkominn sunnudagsmorgun.) Þá er eitthvað mikið að. Allt sem er fyrir klukkan 12:00 á hádegi á laugardögum og sunnudögum […]

Continue Reading
sykur

Jólarauðvínið á góðu róli

Nú eru hlutirnir að gerast hér í Mosbruggi ehf. Sykurmæling eftir fyrri gerjun lagnarinnar er akkúrat fullkomin, 00. Þetta þýðir að fyrri fleyting fer fram með viðhöfn á meðan ég hlusta á Reykjavík síðdegis núna á eftir. Fari allt að óskum verður þetta sælgæti klárt rétt fyrir Þorláksmessu og ég neita því ekki að ég […]

Continue Reading
landsbanki

Fjölmiðlar vega að sjálfu frelsinu!

Alveg er það með ólíkindum hvað fjölmiðlar landsins eru seinþreyttir við að níða skóinn af starfsfólki bankanna sem af ósérhlífni og sjálfsbjargarviðleitni reynir að skrimta í kreppunni og ala önn fyrir sér og sínum. Hvort tveggja Ríkissjónvarpið og Stöð 2 féllu niður á það lágkúrulega plan í kvöldfréttum sínum 3. desember að blása það upp […]

Continue Reading
abc

Styrkið ABC með súpuáti

Eftirfarandi fréttatilkynning hefur borist atlisteinn.is (óbreytt fyrir utan að innsláttarvillur eru færðar til betri vegar): Styrktarsúpa á veitingastaðnum Basil og Lime! (feitletrun er ritstjórnar) Veitingastaðurinn Basil og Lime, Klapparstíg 38, býður vegfarendum upp á súpu og brauð frá kl. 12:00 – 14:00 á laugardögum fram að jólum.  Súpan er seld í upphituðu tjaldi við veitingastaðinn. […]

Continue Reading
smart

Púðurtunna í próflestrinum

Það vita þeir sem til þekkja að fátt er í heiminum meira svæfandi en að sitja yfir misdjöfullegum fræðiritum um hitt og þetta fyrir próf. Þetta er ég að reka mig á þessa dagana og það með þungum dynk. Þegar dagurinn byrjar klukkan 5, vinnutími er 6 – 9, svo líkamsrækt og heim í lestur […]

Continue Reading
helladir

Úr hel

Kolsvart metal-hjarta mitt tók þrjú aukaslög við að berja augum það fagnaðarerindi sem Fréttablaðið boðar í dag undir fyrirsögninni „Hellaðir í bílskúr í Garðabæ. “ Þarna er rætt við Frosta Runólfsson, einn hinna nafntoguðu og alræmdu Heiðarlundarbræðra sem auk Frosta telja þá Sigurð og Skapta Þór. Ég get alveg vottað að ekkert af því sem […]

Continue Reading
galaxy

Mögnuð spá um þróun fjölmiðla til 2051

Miðvikudaginn 25. nóvember 2009 sat ég mína síðustu kennslustund við Háskóla Íslands. Hún var jafnathyglisverð og fyrsta kennslustund við sama skóla 5. september 1993 var svæfandi. Þessi síðasta kennslustund var lokatíminn í málstofu í fjölmiðlafræði hjá prófessor Þorbirni Broddasyni. Í þessum lokatíma flutti samnemandi minn, Sigríður Ragnarsdóttir, mjög áhugaverðan fyrirlestur um nýja miðla og framtíð […]

Continue Reading
defence

Þjóðaratkvæði um Icesave

atlisteinn.is skorar á alla lesendur síðunnar, og reyndar landsmenn til sjávar og sveita yfirleitt, að láta undirskrift sína í té á heimasíðu In Defence-hópsins (smella hér) og skora þar með á forseta lýðveldisins að synja Icesave-lögunum staðfestingar og leggja ákvörðunina um brautargengi laganna í hendur þjóðar sem aldrei fær að hafa neitt að segja um […]

Continue Reading