Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

gnarr

Gnörrunga þáttr

Djöfull er ég sáttur við Jón Gnarr í Kastljósinu í gær! Eftir að Brynja þylur upp öll þau kosningaloforð sem Jón hefur svikið segir hann sallarólegur: ‘Já, en ég sagði líka að ég myndi svíkja öll kosningaloforð sem ég gæfi.’ Það er alveg rétt, hann sagði það í vor, ég man það eins og ég […]

Continue Reading
norturai

Norsk vinnumarkaðssálfræði

Margt er kyndugt í hinum mikla kýrhaus norskra stjórnunarhátta. Nú er búið að láta pólskukennarann minn geðþekka, Robert Sumera, róa. Nýliðin vika var hans síðasta hjá Nortura eftir tvær framlengingar. Hann er ekki einn um að þurfa frá að hverfa, nú streymir vertíðarstarfsfólkið út í stríðum straumi og vinnudagurinn í sláturhúsinu kemst í það horf […]

Continue Reading
bombayiii

Drykkjufélagið Sti – in memoriam

Ég var að blaða í gömlum Word-skjölum hjá mér í kvöld og fann þá óforvarandis plaggið sem gefur að líta hér að neðan, lög Drykkjufélagsins Sti. Sti er stytting á Gústi sem er gælunafn Ágústs Þórhallssonar, gamals húsvísks félaga míns úr lagadeild HÍ fyrir tæpum tveimur áratugum. Við héldum hópinn lengi vel nokkrir gamlir félagar […]

Continue Reading
mezzoforte

Mezzoforte á svæðinu

Hinir gamalreyndu Mezzoforte eru með tónleika hérna úti í Sandnesi í þessum skrifuðu orðum, nánar tiltekið í Sandnes kulturhus. Við vorum að spá í að skella okkur en nenntum svo ekki að leggja á okkur ferðalagið enda veður rysjótt, þrútið loft og þungur sjór. Látið þetta ekki leka í Mezzoforte, Gulli frændi ber þar húðir […]

Continue Reading
egill helga

Verðugt viðtal hjá Agli í dag

Það var einstaklega athyglisvert að hlusta á Andra Geir Arinbjarnarson verkfræðing í Silfri Egils í dag. Horfa má á viðtalið hér. ‘…hvort við getum ekki fært fjármuni til alls þessa fólks sem stendur í biðröð eftir plastpokum,’ var meðal þess sem Andri kastaði fram í mjög áheyrilegu viðtali. Andri er búsettur erlendis og er fyrrverandi […]

Continue Reading
sumartimi

Löng helgi, jibbí

Við erum í löngu helgarfríi núna, helgin er heilum klukkutíma lengri en hefðbundnar helgar. Hvernig má slíkt vera? Jú, á þriðja tímanum í nótt, aðfaranótt sunnudags, lýkur sumartíma í Evrópu og vetrartími tekur við. Þetta gerist einfaldlega þannig að klukkan þrjú í nótt verður klukkan tvö. Klukkutíma lengri nætursvefn og klukkutíma lengri helgi. Þá fylgir […]

Continue Reading
sus

Er eðlilegt að ég sé yfirmaður á sjúkrahúsi?

Mér barst atvinnutilboð frá háskólasjúkrahúsinu hér í Stavanger í gær og þáði ég boðið eftir að hafa tekið mér umhugsunarfrest til hádegis í dag. Frá og með 15. nóvember verð ég yfirmaður í intern service avdeling – eða innanhússþjónustudeild – sjúkrahússins og mun þá hafa með höndum stjórn hreingerningargengis nokkurra deilda á sjúkrahúsinu. Starfsheiti mitt […]

Continue Reading
egoghilmar

Þar rauður loginn brann

Hilmar Veigar Pétursson er æskuvinur minn úr Garðabænum og einn sérstakasti náungi sem ég hef kynnst um mína daga. Fyrir utan að vera rauðhærðari en andskotinn hafði Hilmar, sem í dag er tölvunarfræðingur og forstjóri CCP, tileinkað sér forritunarmálið BASIC, sem Sinclair ZX Spectrum-leikjatölvan var einna þekktust fyrir, löngu fyrir fermingu. (MYND: Við Hilmar á […]

Continue Reading
facebook

Ég vissi þetta!

Loksins getur þetta hyski sem er sívælandi um að ég birtist á Facebook kyngt því að þessi vefur er eitt stórt persónuverndarslys. Þessi frétt RÚV síðan í gær (spóla þarf áfram til 05:58 þegar þetta er skrifað) hlýtur að staðfesta það endanlega að með einföldu tölvuþrjótaforriti er auðveldara að ryðjast inn á þitt svæði á […]

Continue Reading
jelzin

Draumur drykkjumannsins

Þetta er að mínu viti það eina sem vantaði á áfengismarkaði heimsins – vodkabelja!!! Gjörsamlega fullkomin lausn fyrir fólk sem ítrekað lendir í þeim hvimleiðu aðstæðum að kaupa of lítið áfengi þegar það fer í ríkið. Við hesthúsuðum eina svona eins og að drekka vatn á föstudaginn og vorum ekki svikin. Þvílíkur munur að vera […]

Continue Reading