Archive | April, 2009

belja

Er það ekki á Indlandi sem beljur eru heilagar?

Hvítvínsbeljan Viña Maipo frá Chile er nú sú ódýrasta (af hvítvíni) í ríkinu hér í Mosfellsbæ og kostar litlar 3.990 krónur (14. apríl 2009). Þetta er ódýrt hvítvín með sætum keim frá fjarlægu ríki í Suður-Ameríku. Alveg nóg fyrir mig til að sötra yfir heimanámi eða lestri fagurbókmennta, ekki kvarta ég yfir gæðunum. Beljan telur […]

Continue Reading
tokuda

Elsta klámstjarna Japans ekki á því að leggja árar í bát

tokudaShigeo Tokuda er 75 ára gamall. Hann kallar þó ekki allt ömmu sína og lét þennan virðulega aldur og nokkur grá hár ekki aftra sér frá því að hefja tökur á nýrri klámmynd um páskana. (Hann heldur sér vel kallinn eins og myndin ber með sér./Reuters)

Tokuda byrjaði reyndar í seinni kantinum, hann hafði unnið á ferðaskrifstofu mestalla starfsævina og var 59 ára gamall þegar hann lék í sinni fyrstu klámmynd. Það virðist þó hafa gengið ágætlega því síðan eru verk hans orðin rúmlega 200. Leikstjóri nýju myndarinnar segir þetta vera japönskum eldri borgurum þarfa áminningu um að aldur sé ekki eitthvað sem þurfi að aftra fólki frá því að stunda kynlíf.

Continue Reading
pskar.jpg

Hallgrímur Pétursson og Passíusálmarnir

‘Upp, upp, mín sál og allt mitt geð,’. Á þessum mögnuðu orðum hefjast Passíusálmar Hallgríms Péturssonar sem komu fyrst fyrir sjónir almúgans á því herrans ári 1666 þegar þeir voru fyrst prentaðir á Hólum í Hjaltadal. Þegar þar var komið sögu var séra Hallgrímur sleginn líkþrá og átti fyrir þær sakir erfitt með að þjóna […]

Continue Reading
eldsneytisfrsla

Af eldsneytisfærslufræðingum

eldsneytisfrslaNýstárlegum heitum yfir gamalgróin störf er ætlað að laða fólk í atvinnuleit að þeim, eftir því sem markaðsrannsóknarfyrirtækið OnePoll hefur fundið út.

Menntastofnunarnærringarráðgjafi og framlínuviðskiptastuðningsfulltrúi. Hvaða fólk er þetta eiginlega? Jú, sá fyrri er starfsmaður í skólamötuneyti en hinn símadama. Þessir uppskrúfuðu starfstitlar og margir fleiri eru að mati breska markaðsrannsóknarfyrirtækisins OnePoll ekkert nema brella vinnuveitenda til að laða almenning að störfum sem á tíðum hefur reynst erfitt að manna, jafnvel þegar atvinnuleysi herjar sem aldrei fyrr á almúgann.

Continue Reading
bin laden og winona

Tvífarar ársins

Sýnt hefur verið fram á að kennslabúnaður á breskum flugvöllum þekki ekki í sundur Osama bin Laden og Winonu Ryder.

Þetta kemur fram á minnisblaði breskra stjórnvalda sem lekið var í fjölmiðla. Búnaðinum, sem bin laden og winonaverið er að prófa á flugvöllum í Manchester og víðar, er ætlað að bera kennsl á farþega sem fara um flugvellina og auðvelda öryggisvörðum og tollgæslu að bera kennsl á hryðjuverkamenn og aðra sem hugsanlega ferðast undir fölsku flaggi og nota fölsuð vegabréf.

Continue Reading