Archive | April, 2009

helling

Þá er maður hálfnaður í sjötugt

Mánudaginn 30. mars klukkan 15:33 að staðartíma fyllti ég árin 35. Þetta var sérstök stund en ánægjuleg. Eftir önnur 35 verð ég annaðhvort staddur í kistu ofan í jörðinni, hægt og rólega að breytast í drullu; slefandi, en brennivínsþyrstur, öldungur á viðeigandi stofnun; fílhraustur djöfull á eftirlaunum eða bæjarróni í Mosfellsbæ. Ég tel um það […]

Continue Reading
gt

Af hverju að blanda oftar?

Ég hef gert þá mikilvægu uppgötvun að það er í raun alveg út í hött að sóa dýrmætum drykkjutíma í að blanda oftar í glös. Þess vegna hef ég tekið upp hálfs lítra gin & tónik-glasið sem styðst við sömu hugmyndafræði og Mikligarður hér áður fyrr…meira fyrir minna. Það er bölvuð og úrelt hugmyndafræði að […]

Continue Reading
skli

Milli heima – heimsókn mín til miðils

I. Þung skref í Vesturbænum (myndin er af Skúla Lórenzsyni) Það er gott að ganga um Vesturbæinn að vori. Þótt ég kalli mig Garðbæing eftir öll árin þar slitnuðu barnsskórnir á Sólvallagötunni og nágrenni hennar, þar hjólaði ég fyrst eftir gangstéttinni dyggilega studdur hjálpardekkjum og beint á móti æskuheimili mínu var sælgætisgerðin Linda sem í […]

Continue Reading
lkstytting

Vafasamur niðurskurður útfararþjónustu

lkstyttingLögregla í Suður-Karólínu rannsakar nú hvort útfararþjónusta hafi fjarlægt fótleggina af líki hávaxins manns til að koma því fyrir í kistunni. Rannsóknin á þessum óhugnanlega niðurskurði er byggð á framburði fyrrverandi starfsmanns útfararþjónustunnar en hinn látni var tæpir tveir metrar á hæð og lést úr krabbameini árið 2004.

Continue Reading
samlokur

Samlokukynslóð í sjálfheldu

samlokurMilljónir breskra fjölskyldna hinnar svokölluðu samlokukynslóðar eru að kikna undan álaginu af að þurfa bæði að sinna foreldrum sínum og afkvæmum.

„Höfum engi þrek, veldr æska þér en elli mér,” kvað hinn aldurhnigni Bersi í Kormáks sögu Ögmundarsonar. Æska og elli eru andstæður sem fjöldi fjölskyldna hinnar svokölluðu samlokukynslóðar í Bretlandi fær nú að finna fyrir en þar er um að ræða fólkið sem hefur bæði fyrir börnum sínum og foreldrum að sjá.

Continue Reading
mynd bjogga

atlisteinn.is tveggja mánaða

Ófreskjan hefur slitið barnsskónum og er hægt og bítandi að verða að byltingarkenndu, ósiðlegu og óseðjandi afli í samfélaginu síðan fæðingin átti sér stað 1. febrúar. Samkvæmt tölfræði frá bakhjörlum síðunnar fjölgaði heimsóknum nýrra lesenda til dæmis um 62,3 prósent í síðustu viku og algjör bylting varð þegar dálkurinn Klósett vikunnar á atlisteinn.is tók upp […]

Continue Reading