Archive | Tuð

gomul kona

Britney Spears naked

Þessi fyrirsögn er tilraun sem ég geri að gamni mínu til að sjá hve mörgum vefrápurum gúgglun þessa orðasambands vísar inn á síðuna. Ég hef sagt frá því áður að á mánudagskvöldum fæ ég í tölvupósti skjal með ítarlegri samantekt á heimsóknafjölda, meðaltíma lesenda á síðunni, upprunalandi heimsókna og ég veit ekki hvað. Einnig upplýsingum […]

Continue Reading
p7190123

Aftenposten fjallar um nýtt bankahrun

Forsíðufyrirsögn Aftenposten í dag er óneitanlega nokkuð grípandi og varð til þess að við kipptum með okkur eintaki af blaðinu í mjólkurinnkaupunum áðan. Lars Magne Sunnanå blaðamaður skrifar heljarmikla grein um myntkörfulán Íslendinga og er greinilega von á meiru þar sem þessi grein er merkt sem 1. hluti. Blaðamaður ræðir við Ólaf Garðarsson og Ágústu […]

Continue Reading
overlege

Húsnæðismálin komin á beint

Frá og með föstudeginum 16. júlí er fengin lausn á helsta áhyggjuefni okkar sem er framtíðarhúsnæðið. Ég minntist á það í pistli 10. júlí að við værum á leið í annað sinn að skoða raðhús við Overlege Cappelensgate sem er svo gott sem í miðbænum og við hlið núverandi vinnustaðar okkar. Eftir þessa síðari skoðun […]

Continue Reading
jim

Þegar stórt er spurt

Norðmenn spyrja mig mikið hvernig Íslendingar geti látið bjóða sér upp á þá meðferð sem þeir sæta frá ríkisstjórn og bönkum landsins. Mér vefst gjarnan tunga um tönn og jafnvel fleiri líffæri. Hvað á ég að segja? Af því bara? Það gengur ekki. Almennt svara ég því að Ísland eigi sér ónýta ríkisstjórn, þá þriðju […]

Continue Reading
hjolad

Hjólreiðaátakið heppnaðist

Átakið Hjólað í vinnuna sem hér fór fram með miklum harmkvælum í síðustu viku gekk heldur betur vonum framar. Í fyrsta sinn tókst okkur af botnlausum aga og ósérhlífni að hjóla til og frá vinnu alla fimm dagana. Þetta gerir 105 kílómetra í heildina og ég er bara nokkuð stoltur af okkur. Þegar við bætist […]

Continue Reading
oydun

Barrannsóknir II og ferð í Sør-Hidle

Metnaðarfullir rannsóknarleiðangrar atlisteinn.is um öldurhús Stafangurs og nágrennis eru hvergi nærri í rénun. Ég fjallaði um Viking Pub í miðbænum hérna fyrir mánuði, sjálfan Keisara Noregs þar sem kantmenn lífsins taka á móti sólskini í glösum sjö daga vikunnar. Nú er ekki síðri perla fundin við göngugötuna í Sandnesi, næsta bæ við Stafangur sem er […]

Continue Reading
hamraganga

Stétt með stétt!

Við erum búin að skrá okkur í verkalýðsfélagið Fagforbundet sem hefur innan sinna vébanda aragrúa starfsgreina og tilheyrir regnhlífarsamtökunum Landsorganisasjonen sem er eins konar ASÍ á sterum. Hér dettur maður ekki sjálfkrafa inn í stéttarfélag þegar maður byrjar að vinna einhvers staðar heldur velur maður það sjálfur og semur svo við félagið um hvers konar […]

Continue Reading
svalir

Almenn grillun hefst

Hitaþol mitt er frekar takmarkað. Þegar við fórum í fríið til Búlgaríu 2007 fann ég hamingjuna með loftkælinguna í herberginu í botni og stillta á frost. Undir henni sat ég sæll með gin & tónik og kældi mig niður til að geta þolað stutta áfanga í mollunni úti á svölum. Sumir myndu spyrja hvers vegna […]

Continue Reading
moggiii

Sagan endurtekur sig aldrei

Ég rakst á þennan skemmtilega Mogga frá 1915 í einkasafninu og gat ekki annað en smellt af mynd af þessari forsíðuauglýsingu Landsbankans. Borgunarskilmálar mjög aðgengilegir…reyndar bara ef kaup eru gerð fyrir 1. mars. Ljóst er að lán með þungum skilyrðum eru síður en svo nýtt fyrirbæri. Eru þetta ef til vill fyrstu myntkörfulánin sem þarna […]

Continue Reading