Forsíðufyrirsögn Aftenposten í dag er óneitanlega nokkuð grípandi og varð til þess að við kipptum með okkur eintaki af blaðinu í mjólkurinnkaupunum áðan. Lars Magne Sunnanå blaðamaður skrifar heljarmikla grein um myntkörfulán Íslendinga og er greinilega von á meiru þar sem þessi grein er merkt sem 1. hluti.
Blaðamaður ræðir við Ólaf Garðarsson og Ágústu Sigrúnu Ágústsdóttur sem eru orðin tæknilega gjaldþrota eftir að hafa tekið myntkörfulán til að fjármagna húsnæðiskaup, nákvæmlega eins og ég sjálfur og þúsundir annarra. Meðal annars er haft eftir Ólafi að Íslendingar hafi forðað sér á harðahlaupum frá verðtryggðu lánunum enda hafi bankastarfsmenn stokkið á fólk í verslunarmiðstöðvum landsins og hvatt það eindregið til að skipta yfir í erlend lán.
Hugtakið myntkörfulán (n. valutalån) er útskýrt til hlítar og sérstaklega tekið fram að slík lán hafi fram að kreppu verið útbreidd á Íslandi og í Austur-Evrópu. Alltaf huggulegt að falla í flokk með þeim ágæta heimshluta. Sagt er frá nýlegum dómi Hæstaréttar og því slegið upp sem fyrirsögn greinarinnar á innsíðu að íslenskir myntkörfulánþegar vonist til að fá helming núverandi höfuðstóls lánanna afskrifaðan. Blaðamaður miðar þar við þá forsendu að lánin verði færð niður í upphaflega lánsfjárhæð í íslenskum krónum.
‘Það sem áður var martröð lántakenda er því á góðri leið með að verða nýtt skipbrot bankanna,’ skrifar Sunnanå og skýrir það með því að íslenskar lánastofnanir hafi veitt myntkörfulán upp á jafnvirði 45 milljarða norskra króna en sjái nú fram á að þurfa hugsanlega að afskrifa 40 – 60 prósent þeirrar upphæðar. Hann fjallar um gjaldþrot Askar Capital (móðurfélags Avant) í síðustu viku og klykkir út með því í burðargreininni að áhrif dóms Hæstaréttar séu þó í besta falli óljós enn sem komið er og nú fylgist erlendir lánardrottnar íslensku bankanna spenntir með framvindu mála.
Að lokum ræðir Sunnanå við Þórólf Matthíasson hagfræðiprófessor og birtir frábæra mynd af honum með risastórt glas af appelsínusafa í forgrunni. Hann hefur það eftir Þórólfi að íslensku bankarnir hafi aftur beðið alvarlegan álitshnekki, einmitt þegar þeir voru komnir á fullt við að vinna traust almennings á ný eftir hrunið (ég hef nú sjálfur ekki orðið mikið var við það meinta átak). Þungamiðjan í málflutningi Þórólfs er að dómur Hæstaréttar sé illskiljanlegur, þar sé því slegið föstu að ólöglegt hafi verið að tengja íslensk lán við gengi erlendra miðla en hins vegar fullkomlega löglegt að veita lán í erlendum gjaldmiðlum beint. Íslenska ríkið hljóti að þurfa að gangsetja nýja bankabjörgunaráætlun verði niðurstaðan sú að afskrifa beri helming myntkörfulána.
Ég bíð spenntur eftir framhaldi greinaflokksins.