Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

gangeren66

Ár í Nesinu og upplestrarfrí

Í dag teljumst við hafa búið eitt ár hér í Sandnes (-i fyrir þá sem vilja beygja upp á íslensku), að minnsta kosti miðað við það sem ég setti í tilkynningu mína til Folkeregisteret þótt í raun hefðum við sofið okkar fyrstu nótt hér aðfaranótt 29. apríl, mitt í einni hroðalegustu flutninga- og þrifahelgi sem […]

Continue Reading
almenn mynd

Spurningin sem gleymdist

Ég óska Íslandi og Íslendingum innilega til hamingju með að hafa rekið af höndum sér þá óværu sem fengið hefur að stjórna landinu síðan vorið 2009 og halda áfram þeirri niðurrifsstarfsemi sem Sjálfstæðisflokkurinn hóf árið 2003. Verið þið sæl, kæru Jóhanna og Árni Páll, og verði ykkur að góðu hvað íslenskum kjósendum sýnist um ykkar […]

Continue Reading
riggerkurs

Hin hæga kvörn tímans

Ég er eiginlega nær dauða en lífi núna þegar þrír af fimm dögum á riggerkurs í boði Rogaland Kranskole eru að baki. Þetta er alveg botnlaust helvíti, ég held að ég hafi aldrei á ævinni setið eins leiðinlegt námskeið og er þá langt til jafnað. Það eru ekki leiðbeinendurnir, þeir eru fínir og hafa skilað […]

Continue Reading
death

Sumarfrí í helvíti og skólalok

Helgin byrjaði á allt öðrum nótum en friðsömum. Síðustu tvær klukkustundirnar í vinnunni á föstudaginn fóru í að skanna endalausan bunka af pappírum, senda tölvupóst út um allt, hnýta lausa enda hægri og vinstri og að lokum setja upp hið annálaða en kuldalega sjálfvirka svar Outlook um að ég sé því miður ekki viðlátinn fyrr […]

Continue Reading
mer

The ghost of Christmas past…heldur betur

Ég varð fyrir athyglisverðri uppljómun í skólanum í dag. Námsefni helgarinnar fjallar um efnafræði, eiginleika og notagildi svokallaðra brunnvökva, hvers kyns vökva sem notaðir eru við borun og frágang brunna og svo við sjálfa vinnsluna úr brunninum. Brá fyrirlesari helgarinnar þríhyrningnum, sem myndin til hliðar sýnir, upp á töflu og útskýrði fyrir okkur þann einfaldleika […]

Continue Reading
fyrsti sopi 2013

Að lokinni lönguföstu

Lokið er þriggja mánaða göngu um dimman en lærdómsríkan dal, þurrkatíð 2013. Þetta eru töluverð tímamót í ár, hvorki meira né minna en tíundi þurrkurinn frá upphafi þurrka árið 2004. Eins og alltaf var tímabilið í ár hreinsandi og á flestan hátt mjög andlega gefandi. Það hefði að minnsta kosti verið býsna erfitt að sitja […]

Continue Reading
um bor

Keyrt um þverbak

Fjórðu hverja viku á ég mér ekki líf. Það er vikan sem ég á vakt við losun og lestun flutningaskipanna sem flytja tækjabúnað og rör út á olíuborpallana á Ekofisk og Eldfisk og svo til baka aftur að svo miklu leyti sem þessir hlutir koma til baka. Á hverju ári fara 17 milljónir tonna af […]

Continue Reading
falck

Offshore-skírteinin í hús

Frá og með nýliðnum föstudegi erum við hjónin komin með offshore sertifikat eftir fjóra stífa daga hjá Falck Nutec. Við höfum sem sagt leyfi hérlendra stjórnvalda til að ferðast með þyrlu út á olíuborpalla á norsku landgrunni og dvelja þar við störf. Það er svo sem ekki nema hálfur sigur þótt óneitanlega hafi tilfinningin verið […]

Continue Reading
bjorgunarbatadyfa

Eins konar sumarfrí

Við erum í sumarfríi þessa vikuna, að minnsta kosti þriðjudag til og með föstudags. Þar með er ekki sagt að við sitjum með freyðandi piña colada og horfum á sólina setjast í glóandi geislahafi í Norðursjóinn. Hins vegar erum við búin að synda töluvert í skærlitum flotbúningum í tveggja gráða köldum sjó í dag. (MYND: […]

Continue Reading