Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

prodigy

Menn hafa engu gleymt

Rogalandsavisen og fleiri blöð slá því upp á forsíðum í dag að Rått og råde-hátíðin, sem haldin var í fyrsta sinn nú um helgina, sé komin til að vera. Um 12.000 manns djöfluðust við undirleik gömlu pilluætunnar Ozzy Osbourne á laugardagskvöldið sem við létum okkur nægja að hlýða á úr garðinum og kom þar glögglega […]

Continue Reading
lifrarpylsubiti

Utanborðsmótor á svín

Í dag fékk ég loksins að upplifa þá sælu á ný að læsa tönnunum í íslenska flatköku með lifrarpylsu. Elli er nýkominn frá gamla landinu og tók netta innkaupaferð fyrir okkur. Flatkökur, lifrarpylsa, SS pylsur, parkódín forte og íslenskt brennivín. Þetta síðasta tvennt vekur ef til vill ugg hjá einhverjum en kemur til af tvennu: […]

Continue Reading
eldhus-daudans

Eldhús sannleikans og klósett dauðans

Matreiðsluþáttur Orkuveitunnar er að slá í gegn á heimsvísu. Stífustu hreinlætisreglur á þeim tveimur vinnustöðum sem ég hef starfað á hér í Noregi, sjúkrahúsi og matvælaframleiðslufyrirtæki, virðast sem húsreglur í blokk í samanburðinum en eru þó ekkert grín. Í núverandi starfi mínu hjá Nortura er starfsfólkið til dæmis sífellt að skipta um föt. Maður fer […]

Continue Reading
kariogbarn

Meyfæðingin

Það er nú ekki á hverjum degi sem fjölgun verður í minni fjölskyldu en nú bar svo við aðfaranótt föstudags síðastliðins að Kári bróðir gat af sér meybarn eitt allfagurt er vigtaðist þegar 12,5 merkur. Þar með hef ég eignast náfrænku, Kári er orðinn pabbi og pabbi afi. Fólk í minni fjölskyldu (og ætt) er […]

Continue Reading
spiritual

Kyrkj’ann!

Úrslit dagsins í Kastljósinu liggja nokkuð ljós fyrir: Illugi Jökulsson 1 – séra Þórhallur Heimisson 0. Það hefur sennilega aldrei gerst síðan mælingar hófust að Helgi Seljan nánast þegi heilt viðtal en hann sagði varla múkk í þætti kvöldsins. Ég var býsna ánægður með málflutning Illuga sem hvað eftir annað rak blauta tusku framan í […]

Continue Reading
skattar2

Sértæk tekjuöflun…er það eitthvað út á skyr?

Mikið er ég feginn að vera fluttur frá Íslandi eftir að hafa hlustað á frétt RÚV í kvöld um það sem Steingrímur J. kallar sértæka tekjuöflun ríkissjóðs, með öðrum orðum skattahækkanir. Næstu tvö ár mun ég, sem nýbúi í Noregi, greiða 20 prósenta tekjuskatt til að auðvelda mér aðlögun að þjóðfélaginu. Staðgreiðsluskattur er 36 prósent […]

Continue Reading
simi

Sjá, ég boða yður mikinn fögnuð…

Klukkan 12:00 á hádegi í dag var nýja heimasímanúmerið okkar virkjað formlega af hálfu Lyse. Þetta tók einn mánuð, við pöntuðum númerið 26. júlí. Þarna er á ferð skólabókardæmi um hinn norska hraða en vinnusálfræðin hér gengur út á að vera helst alltaf í kaffi, mat eða sumarfríi…og helst af öllu bara á eftirlaunum með […]

Continue Reading
skal

Menningarskál

Ég sendi Íslendingum öllum til sjávar og sveita hugheilar kveðjur á Menningarnótt í Reykjavík. Kveðjan kemur auðvitað tveimur dögum of seint vegna vinnu og bókaröðunar um helgina en myndin er rétt tímasett þar sem hún er tekin hérna úti í garði á laugardaginn. Fátt hressir betur eftir helgarvaktina en ískalt hvítvín með erfðabreyttum norskum jarðarberjum […]

Continue Reading
kerfi

Þorskurinn er fólkinu allt…

Þá getur maður farið að sofa rólega eftir að innbrota- og brunavarnakerfi frá Lyse var sett upp hér í dag. Ég hef áður skrifað um Lyse, sem í grunninn er orkuveita, en hjá þeim fær maður á einu bretti síma, net, sjónvarp, rafmagn og þjófavarnakerfi. Fyrir alla súpuna kemur svo einn reikningur mánaðarlega. Það er […]

Continue Reading
grill

Nú er hún Snorrabúð stekkur…

Ég verð að játa að ég hélt að þessi frétt Vísis í dag væri síðbúið aprílgabb. Er þetta ein af hugmyndum rauðhærða riddarans Jóns Gnarr sem ég hef ítrekað lýst yfir stuðningi við? Falla nú öll vötn til Dýrafjarðar. Það er hárrétt sem viðmælandi Vísis segir, þetta er hrein og klár heimska og ekkert annað. […]

Continue Reading