Norskt þjóðfélag fer á hliðina í tvær klukkustundir í dag, frá klukkan 14 til 16 að staðartíma, þegar nokkur stærstu launþegasamtök landsins, LO, Unio og YS, standa fyrir tveggja klukkustunda vinnustöðvun á 120 stöðum í landinu til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á vinnulöggjöf landsins. Bara hér í Rogaland er gert ráð fyrir að 40.000 manns leggi […]
Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson
Sic semper tyrannis…
Ég velti því fyrir mér alla helgina með hléum og yfir rándýru Neskaffi hvort rétt væri að splæsa í pistil um þetta málefni og taka létta mánudagsneikvæðni í janúar sem þó er eins fjarri mér og mögulegt er, mættur ferskur í nýja vinnuviku eftir mánudagsbekkpressuna í morgun sem er eitt besta vikustart sem völ er á. En […]
Hátíðarkveðja
Atlisteinn.is óskar Íslendingum til sjávar og sveita gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með kærri þökk fyrir árið sem senn er á enda og öll hin sem löngu eru á enda. „Lengra komumst við nú ekki að þessu sinni…“ eins og sagði í hinni rómuðu plankastrekkjaraauglýsingu BYKO sem mín kynslóð minnist líklega til æviloka við […]
Margt sýsla menn
Sýslumenn Íslands eru merkilegar stofnanir og einstaklingar sem byggja á fornum stjórnsýslugrunni landsins. Nú vilja þeir allir fara að sameinast hver öðrum sem væntanlega sparar peninga og vesen og jafnvel tíma. Svona lagað getur þó komið upp á óheppilegum tíma líkt og margt annað. (MYND: Aprílgabb þessa árs um norska vegabréfið sem einhverjir kolféllu fyrir […]
Kjalsvín í uppsiglingu
Nýliðin helgi var býsna fróðleg en hana notaði ég til að sækja námskeið og afla mér formlegra réttinda til að stjórna allt að 15 metra löngu sjófari án tillits til vélarafls og stærðar að öðru leyti. Rétt, líklega hefði ég seint tekið upp á þessu brölti algjörlega af eigin hvötum en vinnuveitandinn splæsti og við […]
Brynjar Þór Sigmundsson – in memoriam
„Ég er ekkert að rugga helvítis bátnum, hann er löngu sokkinn!“ eru ummæli sem ávallt koma fyrst upp í hugann þegar ég lít yfir þann tíma sem ég þekkti Brynjar Þór Sigmundsson en í gær bárust mér þau sorgartíðindi yfir hafið frá fjölskyldu Brynjars að hann hefði kvatt þennan heim og okkur sem eftir stöndum. Ívitnuðum […]
Arendal bannar betl – og er mótmælt
Arendal heitir sveitarfélag nokkurt í fylkinu Aust-Agder sem er hér ekki svo langt frá. Þar hafa kjörnir stjórnendur bæjarins nú riðið á vaðið og bannað betl á götum úti, er Arendal fyrst norskra sveitarfélaga til að innleiða slíkt bann og tók það gildi í gær. (MYND: Arendals Tidende) Þá ber svo við að hópur mótmælenda birtist með gný miklum […]
XV. Gamlir hundar
Helsta tilhlökkunarefni allra októbermánaða er lokið, árlegu móti okkar Garðbæinga fyrsta vetrardag. Þar sem þetta var fimmtánda samkoman síðan verkefninu var hleypt af stokkunum á Sunnuflötinni árið 2000 þótti annað ótækt en að hafa daginn sérstaklega veglegan. Þegar í vor sá undirritaður fyrir sér stífa hátíðardagskrá allan daginn en hægt og rólega kom í ljós […]
Besti október sumra…ekki allra
Þriðjudaginn 2. október 1984 ritaði tíu ára pjakkur eftirfarandi í dagbók sína: Ég fór ekki í skólann í morgun vegna þess að það er verkfall. Æska landsins upp til hópa tók þessu óvænta fríi ágætlega svo sem von var, einn mánuður liðinn af kennslu haustsins og stórfínt að komast bara til baka í sumarfrí og […]
Af-arkostir
Ambögur og ýmis málfarslegur niðurgangur sem skyndilega hefur skotið upp kollinum og ágerst hratt er allt að því rannsóknarefni fyrir málvísindafólk. Eitt af nokkrum dæmum er hinn tiltölulega nýi ruglingur á smáorðunum að og af þegar þau gegna hlutverki forsetninga, en þó nánast eingöngu þegar um ritmál er að ræða. Tiltölulega réttskrifandi fólk leitar af bíllyklunum sínum, kvartar […]