Archive | April, 2011

islandii

Á döfinni, þáttur um listir og menningarmál

Ég fer ekki svo inn á vefsíður íslenskra fjölmiðla að ekki blasi við einhver stórmerki. Flóð í Árbæ var ein stærsta frétt dagsins, þar á eftir tilgangslaust tuð um vantraust á ríkisstjórnina sem þingmenn hafa varið öllum deginum í. Hvað skyldi gerast ef vantraustið verður samþykkt? Fólk kýs í milljónasta sinn á stuttum tíma og […]

Continue Reading
johanna

Snúið orðalag ráðherra, leti dauðans og skattar

Er einhver mánudagur í mér eða varð Jóhönnu Sigurðardóttur alvarlegur fótaskortur á tungunni þegar hún fagnaði vantrauststillögu Bjarna Ben á Alþingi (Alþyngi) í dag. Orðrétt segir hún í fréttatíma RÚV og á við stjórnarandstöðuna: ‘Þeir hafa ekki svo oft boðað það að flytja hér vantraust á ríkisstjórnina án þess að láta verða af því.’ Er […]

Continue Reading
bloomberg

Mr. Grimsson 1 – Bloomberg 0

Ég er búinn að hlusta þrisvar á viðtal Maryam Nemazee, hjá sjónvarpi Bloomberg-fréttastofunnar, við Ólaf Ragnar Grímsson í morgun og ég er á leiðinni að hlusta einu sinni enn. Þetta eru bara bókmenntir og ekkert annað. Ég get ekki lagt annað mat á þetta en að forsetinn stingi gjörsamlega upp í fréttamanninn – en ekki […]

Continue Reading
alingiii

Alþyngi Íslendinga

Þetta er tillaga mín að nýjum rithætti á nafni þessarar stofnunar eftir að hafa skemmt mér dável yfir örvæntingarfullum flokksformönnum í Silri Egils í dag í kjölfar glæsilegs sigurs hugsandi Íslendinga í kosningum um Icesave III í gær. Ég óska Íslendingum til sjávar og sveita innilega til hamingju með að hafa ákveðið að láta ekki […]

Continue Reading
sick bastard

Veikur af spennu

Þetta er alveg botninn, ég er rúmliggjandi með flensu og hita á sjálfan Icesave-kjördaginn! Mér verður nú ekki oft misdægurt, síðast árið 2004 minnir mig, og er því þeim mun skelfilegra ef það gerist á merkisdögum íslenska lýðveldisins eins og í dag. Ég bæli því fletið á meðan sól skín í heiði úti, með tölvu […]

Continue Reading
i gardinum

Glímuskjálfti

Icesave-málið er á suðupunkti, það er bókstaflega allt á hvolfi í íslensku fjölmiðlunum og Aftenposten hér í Noregi fjallaði í gær um nýja 54,8 prósenta nei-ið sem þá var niðurstaða könnunar Fréttablaðsins og benti um leið á hátt hlutfall svarenda sem enn væru óákveðnir, þá 24 prósent. Aftenposten skrifar að nú takist Íslendingar á um […]

Continue Reading
pabbi i raektinni

Dauðar lýs úr höfði

Ef þessi mynd fær ekki World Press Photo-verðlaunin 2011, ’12 og ’13 þá veit ég ekki hvað. Þetta er pabbi í ræktinni! Jú jú, segi það og skrifa, Guðmundur Elíasson heimilislæknir, 71 árs gamall hæfilega feitur maður á besta aldri, búsettur á Seltjarnarnesi, sést þarna lyfta lóðum. Á dauða mínum átti ég von frekar en […]

Continue Reading
graduni

Fyrsta gráðun tekin með trompi

Ég fékk áminningu í athugasemdakerfinu fyrir að segja ekki í smáatriðum frá gráðuninni á sunnudag eins og ég lofaði í kvíðapistlinum á laugardag. Ætlunin var að skrifa um hana í gær en þá datt ég í einhvern félagslegan gír og langaði heldur að skrifa um starfamessu NAV á Íslandi. Núna skal ég segja frá gráðuninni, […]

Continue Reading
nav

Norsk starfamessa á Íslandi

Norsk arbeids- og velferdsetat, NAV, sem er eins konar Vinnumálastofnun, félagsmálaráðuneyti og Tryggingastofnun undir einu þaki og reyndar mjög sniðugt fyrirbæri, auglýsir nú grimmt svokallaða starfamessu á Íslandi undir slagorðinu Finner du ikke kompetansen hjemme? (finnur þú ekki hæft starfsfólk heima?). Fyrir nokkrum dögum var yfirskriftin reyndar Ansett en Islending (ráddu Íslending) en það hefur […]

Continue Reading
kosningii

Þakkir, utankjörstaðaatkvæðagreiðsla og prófkvíði

Ég verð að byrja á að þakka fyrir þann aragrúa afmæliskveðja sem borist hafa hérna gegnum síðuna og eins í tölvupósti. Það mætti halda að maður ætti vini…og ættingja meira að segja. Hryllilega ómerkilegur afmælisdagur samt þannig séð, 37 ár, það er einhvern veginn ekki neitt. Hvort tveggja frekar leiðinleg tala og engin ný réttindi […]

Continue Reading