Bandaríkjamenn gangast nú undir ófrjósemisaðgerðir sem aldrei fyrr. Frá þessu er greint í New York Times og segjast sérfræðingar sem þar er rætt við sjá glöggan svip með ástandinu sem ríkti í kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar en þá hafi fæðingartíðni snarlækkað í Bandaríkjunum.
Minnkuð löngun til barneigna mun vera fylgifiskur harðæris og þess að fólk sér fram á erfiða tíma. Læknir nokkur í New York segist hafa framkvæmt 13 prósent fleiri aðgerðir það sem af er þessu ári en á sama tíma í fyrra.







Follow


Shigeo Tokuda er 75 ára gamall. Hann kallar þó ekki allt ömmu sína og lét þennan virðulega aldur og nokkur grá hár ekki aftra sér frá því að hefja tökur á nýrri klámmynd um páskana. (Hann heldur sér vel kallinn eins og myndin ber með sér./Reuters)

Nýstárlegum heitum yfir gamalgróin störf er ætlað að laða fólk í atvinnuleit að þeim, eftir því sem markaðsrannsóknarfyrirtækið OnePoll hefur fundið út.