Archive | Tuð

zimbabwe

Maður er alltaf að græða

Jæja, þá er maður búinn að tryggja sér áhyggjulaust ævikvöld. Lesendur eru beðnir að skima yfir bréfið hér að neðan áður en þeir halda lestrinum áfram. Dear Sir, After the last General Election in my Country Zimbabwe where the Incumbent President Robert Mugabe won the Presidential Election, the Government adopted a very aggressive Land reform […]

Continue Reading
bundy

Þegar afi þinn er pabbi þinn…

Það hlýtur að vera frekar sérstakt að komast að því 22 ára gamall að maður er sonur móður sinnar og afa og það sé hrein lygi og blekkingavefur að systir manns sé virkilega systir heldur í raun móðir. Þetta mátti Theodore Robert Bundy, mun betur þekktur sem Ted Bundy, reyna á eigin skinni. Geðflækjur hans […]

Continue Reading
tennesse

Menn eru alltaf að kanna þessi bisefni

Fréttir af stórvirkri kannabisverksmiðju á Kjalarnesinu minna um margt á hinn goðsagnakennda Tennessee Pot Cave, þar sem löggæslumenn mundu varla eftir annarri eins hugmyndaauðgi á bak við ræktun plantna. Þar var fjöldi manns í vinnu og allt falið í gríðarstórum helli undir einbýlishúsi skammt frá hinni fornfrægu Nashville. Öryggismyndavélar voru um allt, flóttagöng og aðstaðan […]

Continue Reading
sti

Sti tekur slaginn á AMX

Maður er nefndur Sti. Reyndar er Sti stytting á Gústi sem er auðvitað stytting á Ágúst og í þessu tilfelli allveruleg stytting á Ágúst Þórhallsson en þá eru líka öll kurl komin til grafar. Gælunafninu er stolið frá ekki ómerkari manni en Björgvini Halldórssyni sem á einhverjum tímapunkti átti sér rótara sem hét Gústi og […]

Continue Reading
pb160026

Ertu ekki á Facebook?!?

Ef ég fengi eina evru (maður þorir ekki að tala í krónum lengur) í hvert sinn sem einhver slengir þessari spurningu framan í mig væri ég á góðri leið með að verða lítill alþjóðagjaldeyrissjóður í Mosfellsbæ. Svarið er tiltölulega einfalt; nei, ég er ekki þar. Margir samferðarmenn mínir hafa heyrt þessa setningu tiltölulega oft en […]

Continue Reading

Árshátíð íslenskra fangelsa í boði atlisteinn.is

Yfirvöld fangelsismála á Íslandi tóku í dag skref sem er stærra en fyrsta skref Neil Armstrong á tunglinu 21. júlí 1969. Þau tóku þá ákvörðun að vefsetur sannleikans, atlisteinn.is, annaðist veislustjórn á árshátíð íslenskra fangelsisyfirvalda á vorjafndægri, 21. mars 2009. Á myndinni hér við hliðina á sést Páll Winkel fangelsismálastjóri ræða við Guðbjörn Guðbjörnsson sem […]

Continue Reading
edda huld

Hvað getur maður sagt?

Hér að neðan má lesa svar Eddu skólastjóra við harðorðu erindi mínu í síðustu færslu. Ég get ekki annað en tekið þessu eins vel og hægt er. Málflutningur hennar er heiðarlegur og mér er það til efs að ég hefði getað afgreitt málið betur sem skólastjóri. Ég veiti mínum gamla skóla því uppreist æru en […]

Continue Reading
saksskli

Leiðinleg saga af Ísaksskóla

Ég gekk í skóla Ísaks Jónssonar árin 1978 – 1980 og hafði af því gagn og allnokkurt gaman. Sú minning hefur nú verið svert af stjórnendum skólans sem brugðust algjörlega í málinu sem hér segir af, þrátt fyrir að ég hafi í upphafi verið fullvissaður um að málið fengi farsælan endi og væri í góðum […]

Continue Reading
aribert heim

Nýr bar stríðsglæpamanna á Íslandi

Misskilningur getur verið það allra dásamlegasta í lífinu. Einn slíkur kom upp í síðustu viku og teygði sig yfir í þessa með þeim afleiðingum að bjarga alveg sótsvörtum mánudeginum fyrir mig. Einhver kverúlant sagði að lítið bros gæti dimmu í dagsljós breytt og þetta reyndist vera rétt eftir allt saman. Ég var reyndar við það […]

Continue Reading