Archive | August, 2011

twitter

Ég er kominn á Twitter!

Jæja, einhverjum munu væntanlega þykja þetta stórtíðindi en í gær braut ég odd af samskiptasíðuoflæti mínu og skráði mig til leiks á svokölluðum Twitter. Ég hef lengi þrjóskast við að koma nálægt Facebook þrátt fyrir fjölda áskorana og er að hugsa um að halda þeirri stefnu minni til streitu. Twitter-skráningin er meira félagsleg tilraun en […]

Continue Reading
heima mat

Loksins föstudagur

Fyrirsögnin er stolin af ágætu bloggi Arnar Markússonar tölvunarfræðings í Bergen en ég geri hans yfirskrift að minni í dag. Full ástæða er til, hér er risinn úr sæ einhver mesti blíðviðrisdagur sumarsins og hitastig að nálgast mörk hins óþægilega strax vel fyrir hádegi. Það stefnir sem sagt í löng og góð sólböð í dag […]

Continue Reading
valgkort

Fyrstu kosningarnar

Nú er stutt í að ég geti farið að láta til mín taka á pólitískum vettvangi hér í Noregi en fram undan eru okkar fyrstu sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 11. og 12. september. Norðurlandabúar hafa kosningarétt í slíkum kosningum hafi þeir verið búsettir í landinu næstliðinn 30. júní og aðrir útlendingar eftir þriggja ára samfellda […]

Continue Reading
sigfus

Örninn er sestur

Hér rignir höfðingjum. Sigfús Örn Einarsson, fyrrum vinnufélagi frá 365 miðlum og sam-Benz-áhugamaður, barst hingað til Stavanger í kvöld með langferðabifreið frá Vanse þar sem hann gerði fyrsta stopp í Noregi. Urðu að sjálfsögðu miklir fagnaðarfundir og hófum við þegar drykkju í tilefni dagsins þrátt fyrir dagdrykkjubann mitt sem hófst 17. júlí en áskilið var […]

Continue Reading
wall street

Skelfing á Wall Street

Jón Emil Claessen Guðbrandsson, frændi minn og skólabróðir úr MR frá því fyrir 22 árum (þekktur þar sem Jemmi), birtir þessa mynd á Facebook-síðu sinni fyrir rúmum hálftíma og skrifar Panic on Wall Street undir. Hann er tölvugúrú hjá einhverju fyrirtæki á Wall Street og sendir myndina úr símanum sínum. Þetta er sláandi þótt nánast […]

Continue Reading
smar

Fjarskipti

Óhætt er að fullyrða að nokkrar leiðir bjóðist til að ná tali af mér og ekki minnkar úrvalið þegar ég á bakvakt áttundu hverja viku, þá er ástandið eins og myndin hér til hliðar ber með sér; persónulegi síminn, bakvaktarsíminn og almenni vinnusíminn. Þrjú rafeindaundur frá Espoo í Finnlandi (alla vega eru höfuðstöðvar Nokia þar, […]

Continue Reading
bruggtunna

Af svörtum hagkerfum

Þema vikunnar í íslenskum fjölmiðlum virðist vera að svarta hagkerfið blómstri eftir að í ljós kom að Hekla getur ekki ráðið til sín bifvélavirkja þrátt fyrir að nóg sé af þeim á atvinnuleysisskrá. Kemur einhverjum þetta á óvart? Það þurfti enga hagfræðinga til að spá því að gerræðislegar og ýktar skattahækkanir hins vinstri græna jarðfræðings […]

Continue Reading
bin-laden-compound

Bin Laden-aðgerðin í nýju ljósi

Vefútgáfa The New Yorker birtir stórforvitnilega grein eftir blaðamanninn Nicholas Schmidle sem fer rækilega ofan í saumana á Operation Neptune’s Spear, aðgerð CIA og SEAL-sérsveitar bandaríska sjóhersins sem leiddi til dauða Osama bin Laden eftir aðeins níu ára og átta mánaða þrotlausa leit að manninum. Ég splæsti einum og hálfum tíma í lesturinn og var […]

Continue Reading
breiavatnet

Óþolandi þessar hitabylgjur

Þetta var svakaleg verslunarmannahelgi þótt reyndar hafi bara verið um venjulega helgi að ræða hér í Stavanger. Þrátt fyrir að Norðmenn elski að vera í fríi hafa þeir ekki enn haft vit á því að koma sér upp verslunarmannahelgi frekar en Kentucky Fried Chicken. Þeir um það. The Tall Ships Races lauk á laugardaginn með […]

Continue Reading