Framkvæmdastjóri breska fyrirtækisins Serco var sviptur ökuleyfi í sex mánuði eftir að hafa verið gripinn á rúmlega 160 kílómetra hraða á Volvo-bifreið sinni í Suffolk. Þetta væri þó vart í frásögur færandi nema fyrir þá sök að Serco er leiðandi í framleiðslu og uppsetningu myndavéla sem hafa eftirlit með hraðakstri á breskum vegum og hefur […]
Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson
Stærsta fölsunarmál innflytjendapappíra í sögu Bretlands
Þrír Indverjar eru nú fyrir rétti í Bretlandi, ákærðir fyrir að falsa hundruð umsókna um vegabréfsáritanir og selja ólöglegum innflytjendum. Er hér um að ræða umfangsmesta fölsunarmál slíkra pappíra í sögu Bretlands.
Gögnin voru slík dvergasmíð og svo til þeirra vandað að starfsmenn breska útlendingaeftirlitsins stimpluðu pappírana í flestum tilfellum án þess að hugsa sig tvisvar um. Falsararnir, sem vitaskuld eru sjálfir ólöglegir innflytjendur, voru svo sannfærðir um ágæti verka sinna að þeir buðu viðskiptavinum sínum hiklaust þá neytendavernd að þeir þyrftu ekkert að greiða fyrir pappírana fengju þeir ekki dvalarleyfi í Bretlandi út á þá.
8. maí 1974 – 8. maí 2009
Óneitanlega verður manni hugsað til 9. maí 1974 núna þegar Nýir tímar boða til mótmæla á morgun ásamt Hagsmunasamtökum heimilanna. Vissulega er 8. maí á morgun (í dag fyrir flesta sem þetta lesa) en Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur og fleiri málsmetandi menn halda því fram að Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra hafi í raun tekið þá ákvörðun […]
Að stinga höfðinu í…
Myndin hér hægra megin er gamalt metsöluverk á lýðnetinu en ég verð að játa að hún minnir mig töluvert á nýkjörna ríkisstjórn. Sumir eru sem sagt með höfuðið þar sem sólin skín seint og illa. Þegar atlisteinn.is lagði í haf var það eitt yfirlýstra markmiða að flækja síðuna ekki í pólitík. Mér leiðist pólitík svona […]
Gamalt vín á….plastbelgjum
Ástralski vínframleiðandinn Foster’s ríður nú á vaðið með léttvín í plastflöskum með umhverfissjónarmið fyrir augum. Plastið í flöskunum er látið líkjast gleri í útliti svo sem kostur er en á móti kemur þó að ekki þykir ráðlegt að geyma vínið lengur en í tólf mánuði í þessum nýju umbúðum sem Foster’s setur að sjálfsögðu á […]
Ron Howard hvetur Vatíkana til að sjá Engla og djöfla
Leikstjórinn Ron Howard hvetur embættismenn Vatíkansins til að sjá kvikmyndina Englar og djöflar áður en þeir gagnrýna hana. Þarna er um að ræða annað stykki úr smiðju Dan Brown en margir minnast bókarinnar og kvikmyndarinnar Da Vinci-lykillinn sem olli slíkum úlfaþyt, hvort tveggja innan Vatíkansins sem kaþólsku hreyfingarinnar Opus Dei, að menn muna varla annað eins.
Negldur!
Lögreglan í Sydney í Ástralíu birti á föstudaginn röntgenmynd af höfði kínversks innflytjanda sem skotinn var 34 sinnum í höfuðið með naglabyssu í fyrrahaust. Tvö börn fundu lík mannsins vafið inn í teppi en hann hafði verið búsettur í Ástralíu síðan árið 2000. Yfirmaður morðdeildar lögreglunnar í Sydney sagðist aldrei hafa séð neitt þessu líkt […]
Til eru fræ sem fengu þennan dóm
Tíu manns eru í haldi lögreglunnar í Osaka í Japan, tveir fyrir að bjóða kannabisfræ til sölu á Netinu og átta fyrir að þiggja boðið og kaupa fræ af mönnunum. Kaupendurnir eru flestir framhaldsskólanemendur og höfðu þeir ætlað sér að rækta kannabisplöntur af fræjunum og nota græðlinga af þeim meiði til að auka sér úthald […]
Farsíminn líffæri í Bandaríkjunum
Þegar rætt var við rúmlega eitt þúsund Bandaríkjamenn og þeir beðnir um að gera grein fyrir því hvaða tækja og tóla þeir vildu síst vera án kenndi ýmissa grasa en forsvarsmenn Pew Research Center, sem gerði könnunina, eru sammála um það að farsíminn sé það tæki sem hafi dalað hvað minnst í vinsældum og náð að halda toppsætinu í svipuðum könnunum allar götur síðan 2006.
Rótarboðsháttur og fleiri geðsjúkir hættir sagna í færeysku
Ég er að sjálfsögðu félagi í Íslenska málfræðifélaginu og bíð þess ávallt með eftirvæntingu að ársrit félagsins, Íslenskt mál og almenn málfræði, berist um lúgu mína. Slíkt gerðist í dag og skókst húsið þegar ritið féll inn um lúguna enda efni þess meiri háttar þungavigtarboðskapur öllum þeim er láta sig varða íslenskt mál og málfræði […]

Follow