Ástralski vínframleiðandinn Foster’s ríður nú á vaðið með léttvín í plastflöskum með umhverfissjónarmið fyrir augum. Plastið í flöskunum er látið líkjast gleri í útliti svo sem kostur er en á móti kemur þó að ekki þykir ráðlegt að geyma vínið lengur en í tólf mánuði í þessum nýju umbúðum sem Foster’s setur að sjálfsögðu á markað undir heitinu „Green Label” sem vísar til umhverfisverndareiginleikanna. Hver hefði trúað þessu? En hvað getur maður annars sagt, maður kaupir belju sem er ekkert annað en vín í plastPOKA!