Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

p8190122

Geitungabú brennt að nóttu

Í Hænsa-Þóris sögu segir af því er Hænsa-Þórir brenndi inni Þorkel Blundketilsson og var stefnt á Alþingi fyrir ódæðið. Ég skil nú að hluta til hvernig Þóri leið þar sem ég brenndi inni allt að tvö þúsund einstaklinga í nótt. Þeir voru þó allir gul- og svartröndóttir með eiturbrodd enda geitungar allir með tölu. Þetta […]

Continue Reading
dimmuborgir

Dimmuborgir og önnur undur

Ég lofaði kannski aðeins upp í mínar stuttu ermar þegar ég hét sögum af Mývatni og Ásbyrgi. Þetta var allt ósköp fagurt og yfirþyrmandi en í sjálfu sér ekki frá miklu að segja. Við tjölduðum innan um eitthvert Ítalahyski við Mývatn og fórum þaðan í göngu um Dimmuborgir, að því er mig minnir í fyrsta […]

Continue Reading
p8170120

Sorgleg þjónusta hjá Kidda Rót í Hveragerði

Langt er um liðið síðan klósett vikunnar hefur verið valið en síðdegis mánudaginn 17. ágúst spratt upp svo áberandi klósett að fádæmi þykja. Við lok hringferðar um landið ákváðum við að stoppa eftir 400 kílómetra akstur og þiggja kaffibolla hjá Kidda Rót í Hveragerði. Skemmst er frá því að segja að sú heimsókn varð fremur […]

Continue Reading
p8070044

Fiskur, gin og tónik

Við kvöddum Flatey nánast með tárin í augunum og sigldum áfram með Baldri til Brjánslækjar þar sem hin stálgráa sænska bifreið okkar beið. Þaðan ókum við eina verstu vegi landsins næstu þrjá tímana og er fullkomlega ljóst að ég mun þurfa að ræða við Kristján Möller samgönguráðherra um suðurfirði Vestfjarða. Hefði það ekki verið fyrir […]

Continue Reading
heimkoma

Sögur af þjóðvegi 1

Þetta skrifar lúinn en sæll maður sem síðustu 10 daga hefur ekið 2.155 kílómetra umhverfis land sitt (vegalengdin er með útúrdúrum). Ferðasagan mun birtast hér í nokkrum köflum enda frá mörgu að segja og sannarlega voru það engin vonbrigði að ferðast innanlands í stað þess að djamma og djúsa á erlendum ströndum sólbrenndur með Quick […]

Continue Reading
p7130030

Sumarfrí – lífið sjálft kviknar

Í dag, þriðjudaginn 4. ágúst, er formlega fyrsti dagur sumarfrís ársins 2009 hjá okkur. Það væri rætin lygi ef ég héldi því fram að þessa hefði ekki verið beðið með eftirvæntingu í allt sumar. Margir spyrja mig hvað ég sé að þvælast í sumarfrí svona seint en það er einmitt þungamiðjan í þeirri nautn sem […]

Continue Reading
kaupthing

Saurþing

Það er ömurlegt að horfa upp á Kaupþing fela skítaslóðina eftir sig með því að knýja fram lögbann við flutningi frétta sem eiga fullkomið erindi til íslensks almennings. Jafn-ánægjulegt er þó að sjá síðuna wikileaks.org birta gögnin sem þeir Kaupþingsmenn eru svo feimnir við. Finnur bankastjóri lætur auðvitað ekki ná í sig, fáránlegt útspil hjá […]

Continue Reading
bjorn dagbj

Heilastr mæl þú, Björn

Mér leiðist fátt meira en að bera rafrænan fjaðurstaf að tölvustýrðu bókfelli til þess að tuða um svonefnda Icesave-samninga eða væntanlega Evrópusambandsaðild hérvistarslóða. Að mínu viti má grafa upp margt líflegra til að skrifa um á opinberum vettvangi nú þegar Hrunadans ýmissa víkinga, sem kenndir eru við útrás, er hratt og örugglega að koma Íslandi […]

Continue Reading
p7080332

Af menningarástandi

Það er óhætt að halda því fram að Mosfellsbærinn sé vagga menningar og lista. Hér á heimili mínu var stutt atriði kvikmyndarinnar Bjarnfreðarson tekið upp nú í nýliðinni viku. Að sögn leikstjórans, Ragnars Bragasonar, verður þetta verk helsta skrautfjöðrin í íslenskri jólamyndaflóru komandi jól. Vonandi verður þá einhver eftir á landinu til að fara í […]

Continue Reading