Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

dallas

Bobby Björgólfsson

Eftir að hafa átt einstaklega vel heppnaðan dag við ritgerðarskrif, augljóslega eingöngu knúinn af drykkjuskap og leti páskanna, freistaðist ég inn á myndskeiðavefinn ÞúVarp (e. YouTube) núna áðan og fór að þvælast eitthvað þar. Meðal þess sem rak á fjörur mínar var gamli góði Dallas-inngangurinn sem fær flesta sem komnir eru aðeins yfir þrítugt til […]

Continue Reading

Rótin hlýtur uppreist æru

Væri ég opinber stofnun teldist ég sennilega hafa brotið ýmsar greinar stjórnsýslulaga með því að hafa sögu mína af Kidda Rót hangandi hér uppi sem klósett vikunnar í rúma sjö mánuði. Kiddi er nú hættur í Hveragerði og hefur opnað útibú hér í Mosfellsbænum. Sennilega er hann þá að einhverju eða öllu leyti kominn með […]

Continue Reading
paskakanina

Páskar, Guðmundur Njáll og fleiri kirkjuhátíðir

Ekki er ofsögum sagt að þjóðfélagið lamist hálfvegis um páskana, það er að minnsta kosti mikill rólegheitabragur yfir og fréttaflutningur snýst að miklu leyti um fyrirbæri á borð við eldgos sem enga rauða daga þekkja. Við vorum að koma ofan úr sumarbústað í Svínadalnum, hjá pabba og frú, þar sem hugtakið ofát öðlaðist nýja merkingu […]

Continue Reading
1. april

1. apríl!

Þessari fyrirsögn er ekki ætlað að gabba nokkurn mann enda er 1. apríl í dag og engu logið um það. Þetta táknar að í morgun vaknaði ég upp við þá staðreynd að ég flyt af landi brott í næsta mánuði. Þessu fylgdi þægilegur sæluhrollur eftir að hafa horft á æ fleiri fréttir af nýjum hneykslismálum, […]

Continue Reading
hells angelsii

Á Sprengisandi

Ég hvet alla sanna aðdáendur safaríkra umræðuþátta til að hlusta á þátt Sigurjóns M. Egilssonar, Sprengisand, á Bylgjunni á páskadagsmorgun. Sigurjón ætlar meðal annars að spila athyglisverðustu hlutana úr þætti mínum Vígsakir sem ég tók upp fyrir viku og er helmingurinn af MA-verkefni mínu í blaða- og fréttamennsku. Sjá pistil hér á síðunni frá 23. […]

Continue Reading
midaldra

Ég er að verða miðaldra

Náðarstundin nálgast. Meðalaldur íslenskra karlmanna er 79,6 ár samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Það táknar að þegar ég verð 39,8 ára verð ég miðaldra. Á morgun, 30. mars, verð ég 36 ára sem táknar að ég hef nákvæmlega 3,8 ár þangað til ég get kallað mig miðaldra. Ég myndi sætta mig við að vera kallaður margt annað […]

Continue Reading
stavanger

Atvinnutilboð í hús

Við erum komin með vinnu í Noregi. Póstur beið okkar á miðvikudaginn frá Háskólasjúkrahúsinu í Stavanger þar sem við munum starfa við ræstingar í sumar. Ekki bjóst ég við að eiga eftir að starfa innan heilbrigðisgeirans! Þetta var ekki baráttulaust. Mér telst til að tímabilið nóvember til mars höfum við sótt um tæplega 200 störf […]

Continue Reading
skattar

Stórt skref fyrir mannkynið!

Þetta er rosalegt, klukkan 13:59 í dag skilaði ég mínu fyrsta rafræna skattframtali. Eins og þeir vita sem til þekkja er ég með vanafastari mönnum og hef allar götur fram að þessu skilað framtali á pappír. Þetta var hálfgerð trúarathöfn, ég dró fram sparirithöndina og fyllti framtalið út eftir bestu vitund. Næst tók ég ljósrit […]

Continue Reading
stripp

…en með ólögum eyða

Það er enginn hörgull á fólki sem hefur áhuga á að tjá sig um nektardanslögin svokölluðu. Núna er ég að hlusta á piltana í Reykjavík síðdegis spyrja konur sérstaklega út í þetta. Það vekur athygli mína að mörgum þeirra finnst út í hött að banna þetta, starfsemin fari bara algjörlega ofan í jörðina við það […]

Continue Reading
microfonn

Fimmtán einingar á mettíma

Milli klukkan 13 og 14 í dag lauk ég verklega hluta 30 eininga MA-verkefnis á 53 mínútum (undirbúningur reyndar ekki meðtalinn). Mínir gömlu félagar á Bylgjunni komu til móts við mig og leyfðu mér að taka upp umræðuþátt þar sem ritgerðarefnið var krufið til mergjar, það er að segja nafnbirtingar grunaðra manna í fjölmiðlum. Mér […]

Continue Reading