Author Archive | Atli Steinn Guðmundsson

tattoo

Nýtt blek og nýjar jólaáætlanir

Nú á haustdögum 2011 hefur mitt fimmta húðflúr litið dagsins ljós og það fyrsta sem ég bæti í safnið í rúman áratug eða síðan í desember árið 2000. Það sem kannski er þó merkilegra er að þetta er í fyrsta sinn sem ég svík lit og leyfi öðrum manni en Jóni Páli Halldórssyni (JP Tattoo […]

Continue Reading
bjrprfun

Jólabjórprófun atlisteinn.is

Eins og þeir vita sem mig þekkja drekk ég ekki bjór. Ég drakk hann hins vegar á yngri árum, nánar tiltekið frá því að hann var leyfður á Íslandi 1. mars 1989 og til 1994. Þá varð ég bara að játa það fyrir sjálfum mér að mér finnst bjór einfaldlega vondur. Auk þess er ekki […]

Continue Reading
eldfjll

VG fjallar um Kötlugos

Helgartímarit VG (VG Helg) gerir metnaðarfulla úttekt á væntanlegu Kötlugosi og íslenskum eldfjöllum almennt. Rætt er við Ara Trausta Guðmundsson jarðeðlisfræðing sem leiðir norska lesendur í sanninn um íslensk eldfjöll og eðli þeirra. Norðmenn hafa mikinn áhuga á íslenskum eldgosum og mikið fór hér fyrir Grímsvatnagosinu í maí enda gengu flugsamgöngur í Stavanger allar úr […]

Continue Reading
li tynes

Óli Tynes – In memoriam

‘Það er orðið mikið mannval þarna hinu megin,’ var haft eftir bónda nokkrum í erfidrykkju einhvers staðar einhvern tímann. Ég geri þau orð að mínum við andlát Óla Tynes, ofurblaðamanns og vinnufélaga míns hjá 365 miðlum árin 2008 og ’09. Óli starfaði sem blaðamaður í hálfa öld, geri aðrir betur, og byrjaði og endaði ferilinn […]

Continue Reading
cider

Peru-cider – fíkn framtíðarinnar?

Grevens peru-cider frá Hansa Borg-brugghúsunum í Bergen (og víðar) er nýjasta fíknin í lífi mínu. Þetta er glettilega góður svaladrykkur, 4,7 prósent og fæst í öllum búðum hér (4,7 er hámarksstyrkur áfengis úr öðrum verslunum en Vinmonopolet). Grevens fæst einnig með eplabragði og skógarberjabragði en einhvern veginn hefur perubragðið náð mestum tökum á mér þrátt […]

Continue Reading
logitrans

Beina brautin verður æ beinni

Atvinnumál hér á heimilinu virðast vera að komast í endanlegt horf. Rósa fékk atvinnutilboð í gær frá flutningafyrirtækinu Logi Trans þar sem hún sótti um starf á lager fyrir nokkrum vikum. Um er að ræða hraðstækkandi fyrirtæki með starfsemi víða um Evrópu, þar af töluverða innan norska olíubransans. Af 30 umsækjendum voru fjórir boðaðir í […]

Continue Reading
oktoberfest

Styrkur og einbeittur drykkjuvilji á októberhátíð NorSea Group

Svokallað oktoberfest NorSea Group fór fram á föstudag. Reyndar var ekki um alla samsteypuna að ræða heldur eingöngu stöðvarnar hér í Stavanger sem saman mynda dótturfyrirtækið NorSea AS. Í raun er þarna um að ræða árshátíð fyrirtækisins en þó ekki þar sem þessi samkoma er eingöngu haldin annað hvert ár. Hvað sem því líður er […]

Continue Reading
ikea

Samsetning IKEA-húsgagna og ný varmadæla

Eftir rúmt ár hérna á Overlege Cappelensgate létum við þann gamla draum rætast að standsetja skrifstofuna okkar svokölluðu, sameiginlega tölvu- og margmiðlunaraðstöðu í herbergi uppi á annarri hæð sem hefur, þetta rúma ár sem við höfum búið hér, þjónað hlutverki ruslageymslu. Forsenda þess að þetta mikla skref yrði stigið var helför í IKEA til kaupa […]

Continue Reading