Bretar, og án efa fleiri þjóðir, kjósa að nota reiðufé frekar en greiðslukortin til að hafa betri yfirsýn yfir hve miklu þeir eyða. Rannsókn samtaka smásöluverslana í Bretlandi leiddi í ljós að 56 prósent allra greiðslna sem inntar voru af hendi í verslunum í fyrra voru í peningum.

Menn eru alltaf að kanna þessi bisefni
Fréttir af stórvirkri kannabisverksmiðju á Kjalarnesinu minna um margt á hinn goðsagnakennda Tennessee Pot Cave, þar sem löggæslumenn mundu varla eftir annarri eins hugmyndaauðgi á bak við ræktun plantna. Þar var fjöldi manns í vinnu og allt falið í gríðarstórum helli undir einbýlishúsi skammt frá hinni fornfrægu Nashville. Öryggismyndavélar voru um allt, flóttagöng og aðstaðan […]
MAX1 gerir hreint fyrir sínum dyrum
Eftir að hafa sent MAX1 bílavaktinni formlega kvörtun vegna atviksins sem lýst er hér að neðan fékk ég mjög ánægjulegt símtal frá kvörtunarþjónustu þeirra upp úr helgi. Kurteis og fagmannlegur aðili hringdi í mig og fullvissaði mig um að mönnum þætti þetta mjög miður og starfsfólkinu stæði engan veginn á sama um hvernig staðið væri […]
Fritzl boðin áfallahjálp við réttarhöldin
Hinum 73 ára gamla Josef Fritzl, sem nú er fyrir rétti í Austurríki fyrir nauðgun og frelsissviptingu á dóttur sinni, hefur verið boðin áfallahjálp til að takast á við réttarhöldin og það andlega álag sem þeim fylgir.
Sikileyska mafían í kvíðakasti
Heimsóknir Tonys Soprano, sem sjónvarpsáhorfendum er að góðu kunnur úr sjónvarpsþáttaröðinni The Sopranos, til sálfræðings eru alls ekki langt frá hinu sanna í bransanum. Í þáttunum kemur Tony reglulega við hjá kæra sála og fjallar um hvað atvinna við glæpi leggist nú stundum á sálina.

MAX1 drullar upp á bak
Það er hvorki meira né minna en MAX1 bílavaktin sem er klósett vikunnar að þessu sinni. Þau dusilmenni slá Euroshopper hér að neðan margfalt út með svínslegum viðskiptaháttum sínum. Nýjasta viðskiptafléttan hjá MAX1, sem er í eigu Volvo-jöfursins Brimborgar, er nefnilega að gefa verð vöru og þjónustu upp án virðisaukaskatts. Löglegt en gjörsamlega siðlaust. Nú […]

Sti tekur slaginn á AMX
Maður er nefndur Sti. Reyndar er Sti stytting á Gústi sem er auðvitað stytting á Ágúst og í þessu tilfelli allveruleg stytting á Ágúst Þórhallsson en þá eru líka öll kurl komin til grafar. Gælunafninu er stolið frá ekki ómerkari manni en Björgvini Halldórssyni sem á einhverjum tímapunkti átti sér rótara sem hét Gústi og […]
Euroshopper er klósettið þessa viku
Kreppa og allt það en er þetta ekki frekar ódýr leið til að spara? Það leggst hér með við drengskap atlisteinn.is að þessi pakkning af marsípanbrauðum var keypt í þessu ástandi og myndin er ekki sviðsett. Ekki það að ég eigi að vera að kaupa slíkt þar sem ég er í megrun eftir að hafa […]

Ertu ekki á Facebook?!?
Ef ég fengi eina evru (maður þorir ekki að tala í krónum lengur) í hvert sinn sem einhver slengir þessari spurningu framan í mig væri ég á góðri leið með að verða lítill alþjóðagjaldeyrissjóður í Mosfellsbæ. Svarið er tiltölulega einfalt; nei, ég er ekki þar. Margir samferðarmenn mínir hafa heyrt þessa setningu tiltölulega oft en […]
Miðnæturolíuumhverfisráðherrann neglir sviðið
Umhverfisráðherra Ástralíu átti óvænta endurkomu upp á svið þegar hann sameinaðist sinni gömlu hljómsveit á styrktartónleikum fyrir fórnarlömb skógareldanna.