Deva Kumarasiri er frá Sri Lanka og stjórnar pósthúsi í Nottingham. Hann hefur átt í harðvítugri deilu við póstmálayfirvöld í borginni eftir að
hann tók þá ákvörðun að neita viðskiptavinum, sem ekki eru mæltir á enska tungu, um þjónustu.
Kumarasiri hefur sjálfur búið í Bretlandi í 18 ár og lært tungumálið vel. Hann segir viðskiptavini sem ekki tala ensku tefja afgreiðslu á pósthúsinu og vera almennt til tómra vandræða fyrir starfsfólkið og aðra viðskiptavini.
Kumarasiri segist hafa fengið mikinn meðbyr í þessu baráttumáli en þó sé lítill hópur fólks á annarri skoðun en hann og meðal annars hafi honum borist hótanir frá ýmsum hópum innflytjenda auk þess sem leiðtogi múslimasamfélagsins í Nottingham hafi lagt fram formlega kvörtun við yfirvöld.