Miranda Walton í Austin í Texas fer ekki í geitarhús að leita ullar. Síður en svo. Hún skipti á gamla Ford-pallbílnum sínum og nokkrum geitum og fær nú úr þeim alla mjólk til heimilisins en ekki er nóg með það. Samkvæmt lögum Texas fær Walton líka skattaafslátt þar sem hún notar landareign sína undir búpening en slíkt er frádráttarbært til skatts.
Archive | March, 2009
Súdanar taka til við að brugga mjöð
Í Suður-Súdan gantast íbúarnir með að áfengi sé þeim ákaflega mikils virði. Það hafi kostað þá tveggja áratuga blóðuga borgarastyrjöld að koma sér í þá stöðu að geta fengið sér kaldan bjór að loknum erfiðum, og alla jafna heitum, vinnudegi.
Pósturinn hringir alltaf tvisvar – og talar ensku!
Deva Kumarasiri er frá Sri Lanka og stjórnar pósthúsi í Nottingham. Hann hefur átt í harðvítugri deilu við póstmálayfirvöld í borginni eftir að
hann tók þá ákvörðun að neita viðskiptavinum, sem ekki eru mæltir á enska tungu, um þjónustu.
Kumarasiri hefur sjálfur búið í Bretlandi í 18 ár og lært tungumálið vel. Hann segir viðskiptavini sem ekki tala ensku tefja afgreiðslu á pósthúsinu og vera almennt til tómra vandræða fyrir starfsfólkið og aðra viðskiptavini.
Kumarasiri segist hafa fengið mikinn meðbyr í þessu baráttumáli en þó sé lítill hópur fólks á annarri skoðun en hann og meðal annars hafi honum borist hótanir frá ýmsum hópum innflytjenda auk þess sem leiðtogi múslimasamfélagsins í Nottingham hafi lagt fram formlega kvörtun við yfirvöld.
Bretar halda tryggð við reitt fé
Bretar, og án efa fleiri þjóðir, kjósa að nota reiðufé frekar en greiðslukortin til að hafa betri yfirsýn yfir hve miklu þeir eyða. Rannsókn samtaka smásöluverslana í Bretlandi leiddi í ljós að 56 prósent allra greiðslna sem inntar voru af hendi í verslunum í fyrra voru í peningum.
Menn eru alltaf að kanna þessi bisefni
Fréttir af stórvirkri kannabisverksmiðju á Kjalarnesinu minna um margt á hinn goðsagnakennda Tennessee Pot Cave, þar sem löggæslumenn mundu varla eftir annarri eins hugmyndaauðgi á bak við ræktun plantna. Þar var fjöldi manns í vinnu og allt falið í gríðarstórum helli undir einbýlishúsi skammt frá hinni fornfrægu Nashville. Öryggismyndavélar voru um allt, flóttagöng og aðstaðan […]
MAX1 gerir hreint fyrir sínum dyrum
Eftir að hafa sent MAX1 bílavaktinni formlega kvörtun vegna atviksins sem lýst er hér að neðan fékk ég mjög ánægjulegt símtal frá kvörtunarþjónustu þeirra upp úr helgi. Kurteis og fagmannlegur aðili hringdi í mig og fullvissaði mig um að mönnum þætti þetta mjög miður og starfsfólkinu stæði engan veginn á sama um hvernig staðið væri […]
Fritzl boðin áfallahjálp við réttarhöldin
Hinum 73 ára gamla Josef Fritzl, sem nú er fyrir rétti í Austurríki fyrir nauðgun og frelsissviptingu á dóttur sinni, hefur verið boðin áfallahjálp til að takast á við réttarhöldin og það andlega álag sem þeim fylgir.
Sikileyska mafían í kvíðakasti
Heimsóknir Tonys Soprano, sem sjónvarpsáhorfendum er að góðu kunnur úr sjónvarpsþáttaröðinni The Sopranos, til sálfræðings eru alls ekki langt frá hinu sanna í bransanum. Í þáttunum kemur Tony reglulega við hjá kæra sála og fjallar um hvað atvinna við glæpi leggist nú stundum á sálina.
MAX1 drullar upp á bak
Það er hvorki meira né minna en MAX1 bílavaktin sem er klósett vikunnar að þessu sinni. Þau dusilmenni slá Euroshopper hér að neðan margfalt út með svínslegum viðskiptaháttum sínum. Nýjasta viðskiptafléttan hjá MAX1, sem er í eigu Volvo-jöfursins Brimborgar, er nefnilega að gefa verð vöru og þjónustu upp án virðisaukaskatts. Löglegt en gjörsamlega siðlaust. Nú […]
Sti tekur slaginn á AMX
Maður er nefndur Sti. Reyndar er Sti stytting á Gústi sem er auðvitað stytting á Ágúst og í þessu tilfelli allveruleg stytting á Ágúst Þórhallsson en þá eru líka öll kurl komin til grafar. Gælunafninu er stolið frá ekki ómerkari manni en Björgvini Halldórssyni sem á einhverjum tímapunkti átti sér rótara sem hét Gústi og […]

Follow