Samlokukynslóð í sjálfheldu

Samkvæmt könnun samtakanna Charity 4 Children eru 28 prósent kynslóðarinnar í þessum vandræðum. Blessuð börnin þurfa umsjá og umhyggju en ekki er nóg með það heldur þarf að snúast í kringum gamla settið líka, skreppa í búðir fyrir það, flytja það milli lækna og jafnvel hlaupa undir bagga með því fjárhagslega.

Þetta telja sumir miklu meira en fullt starf og eru nánast að kikna undan þessu álagi kynslóðanna. Þá segist helmingur þeirra, sem könnunin náði til, telja lífið mun erfiðara núna en fyrir tveimur áratugum og um þriðjungur hittir ættingja innan stórfjölskyldunnar ekki nema einu sinni á ári eða jafnvel sjaldnar. Fjölskylda er eins og skilvinda, bara verra.

Athugasemdir

athugasemdir